fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Flottir Stones í Hyde Park

Egill Helgason
Sunnudaginn 14. júlí 2013 19:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við vorum kannski ekki alveg upp við sviðið en það var rosa stemming á Rolling Stones tónleikunum í Hyde Park í gærkvöldi. Þetta var síðasti konsertinn á tónleikaferð þeirra – þeir voru miklu betri en þegar ég sá þá síðast árið 2006. Því verður varla jafnað saman.

Síðustu vikurnar hafa verið eins og sigurför fyrir hljómsveitina heima á Englandi. Fyrst enduðu þeir Glastonbury-hátíðina, það var sagt á eftir að þeir hefðu verið besta lokanúmer Glastonbury fyrr og síðar. Svo voru tvennir stórir tónleikar í sumarblíðu í miðri London, í Hyde Park.

Mick Jagger verður sjötugur 26. júlí næstkomandi. Það er þó ekki að sjá á manninum. Hann heldur uppi mikilli keyrslu á sviðinu og röddin er flott. Hér er hann í hvítri blússu sem hann sagði að væri sú sama og hann var í þegar  Stones spiluðu í Hyde Park á frægum tónleikum 1969.

 

IMG_2244

 

Hápunktur tónleikanna var þegar gítarleikarinn Mick Taylor steig á svið og hljómsveitinn renndi sér í gegnum langa útgáfu af Midnight Rambler. Taylor var í Stones á árunum 1969 til 1975 og er sagður vera besti hjóðfæraleikari sveitarinnar fyrr og síðar. Nærvera hans hafði greinilega mjög góð áhrif og spilagleðin leyndi sér ekki.

 

IMG_2247

 

Og svo eru þeir hérna, Keith og Kári.

IMG_2232

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 8 klukkutímum
Flottir Stones í Hyde Park

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt