fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Eyjan

Starfstjórn, þingrofsréttur – og vanefndir í stjórnarskrármálinu

Egill Helgason
Miðvikudaginn 20. febrúar 2013 21:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Þorsteinsson bendir á að Þór Saari sé kominn á hálan ís í tillögu um vantraust þegar hann leggur til að starfstjórn skipuðum fulltrúum allra flokka taki við.

Það er nefnilega ekki Alþingis að mynda slíka stjórn, heldur er það hlutverk forseta Íslands. Og ef vantraust verður samþykkt, þá er það í hans verkahring að rjúfa þing.

Vilhjálmur, sem sat í Stjórnlagaráði, skrifar:

„Í tillögu Þórs Saari er talað um að þing verði rofið eigi síðar en 28. febrúar 2013. Þangað til sitji starfsstjórn skipuðum fulltrúum allra flokka á þingi. Þetta tvennt stenst ekki stjórnarskrána. Þingið hefur ekki sjálft þingrofsréttinn, og ríkisstjórn verður ekki mynduð án atbeina forseta. Tillaga Þórs er því varla þingtæk í óbreyttri mynd.“

En það er merkilegt að nú segjast formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ætla að styðja tillöguna, í henni stendur nefnilega að vantraustið sé borið fram vegna vanefnda í stjórnarskrármálinu:

  „Sú vantrauststillaga sem hér er lögð fram beinist gegn ríkisstjórninni þar sem hún fær ekki afgreitt frumvarp til stjórnarskipunarlaga byggt á þeim drögum sem samþykkt var að leggja til grundvallar nýrri stjórnarskrá og samþykkt voru með yfirgnæfandi meiri hluta í þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012.  Lýðræðisumbætur sem lofað var í aðdraganda kosninga hafa ekki séð dagsins ljós og enn er við lýði ójafn kosningarréttur eftir landshlutum, ójafnrétti í fjármálum stjórnmálaflokka og skortur á persónukjöri og beinu lýðræði. Með hliðsjón af því grundvallaratriði í lýðræðisríkjum að allt vald komi frá þjóðinni virðist ríkisstjórnin ganga í berhögg við augljósan vilja þjóðarinnar um nýja stjórnarskrá.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Öldungurinn sem sá ekki vandann

Svarthöfði skrifar: Öldungurinn sem sá ekki vandann