fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Að rukka ferðamenn

Egill Helgason
Þriðjudaginn 11. febrúar 2014 10:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umræðan um hvernig eigi að hátta gjaldtöku í ferðaþjónustu er dálítið krampakennd.

Í fyrra hófu eigendur Kersins að rukka aðgangseyri af ferðamönnum sem vilja sjá þessa náttúruperlu. Gjaldið mun vera sem nemur 2 evrum á mann.

Nú ætla eigendur Geysissvæðisins að fara sömu leið – þeir hyggjast setja á 600 króna gjald.

Eitt af því sem kemur á óvart þegar maður ferðast erlendis er hversu gjaldtaka af þessu tagi er útbreidd og verðið nokkuð hátt. Ég hef borgað mig inn á náttúruvætti í Evrópu, þjóðgarða vestan hafs og í fyrra var ég í losti þegar ég þurfti að borga 40 evrur til að koma fjölskyldunni inn í Colosseum í Róm. Það voru hátt í 7000 krónur.

Útlendingar verða tæplega hissa yfir gjaldtöku af þessu tagi og hún er ekki líkleg til að fæla neinn frá, sérstaklega ekki ef tekið er fram að peningarnir fari til verndunar og viðhalds.

Það er svo spurning hvernig þetta rímar við hugmyndir um svokallaðan náttúrupassa. Þær eru hins vegar ómótaðar enn og ólíklegt að þær komist til framkvæmda nú – ef þá nokkurn tíma.

Mesta furðan er reyndar sú að horfið hafi verið frá hækkun virðisaukaskatts á gistingu sem áformuð var í tíð síðustu ríkisstjórnar. Þá ráku menn upp mikið ramakvein sem olli því að þetta fór að virka sem argasta óréttlæti.

En þetta er sjálfsögð leið til tekjuöflunar fyrir fjárvana ríkissjóð á tíma þegar bóluástand er í ferðamennsku  – það gengur ekki alveg til lengdar að launþegar axli allar byrðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur