fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Sigur hinna ríku

Egill Helgason
Þriðjudaginn 4. febrúar 2014 15:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinir ríku hafa unnið stéttastríðið, skrifar Josh Bornstein í grein í Guardian.

Fremur en að deila auði sínum reyna þeir að forðast að borga skatta og hella svo úr skálum reiði sinnar ef reynt er að koma lögum yfir þá, segir Bornstein.

Alls staðar í heiminum erum við farin að þekkja þetta mynstur, en Bornstein segir frá því þegar hann fór að vinna á virtri lögfræðistofu.

Þá þurfti hann ekki lengur að standa í röð í bankanum, heldur fóru bankamenn að hafa samband við hann, bjóða honum fjárfestingakosti og aðferðir til að komast  hjá því að greiða skatt – líkt og það eigi að vera eitthvað valkvætt.

Bornstein lýsir vaxandi stéttaskiptingu, nefnir ríkasta eitt prósentið í Ástralíu sem sankar sífellt að sér meiri auði eins og annars staðar, og lágmarkslaunin í Bandaríkjunum sem eru svo léleg að ekki er hægt að lifa á þeim nema að fá félagslega aðstoð.

Hann vísar svo í orð auðmannsins Warrens Buffett sem hefur mælst til þess að skattkerfinu verði breytt svo hann geti borgað hærri skattprósentu en ritarinn hans.

„Við unnum,“ sagði Buffett um stríðið milli stéttanna.

Borstein nefnir aðferðir sem stórfyrirtæki og auðmenn nota til að komast hjá því að greiða til samfélagsins og reiðina sem grípur um sig þegar nefnt er að jafna megi kjörin eða tækifærin – ellegar að skoða hvernig er í pottinn búið.

Og eins og hann segir er það helst Frans páfi sem reynir að malda í móinn þar sem stjórnmálamenn hafa gefist upp. Hann sé í fararbroddi þar sem róttækar hugmyndir um efnahagsmál eru annars vegar með tölur sínar um ójöfnuð, dýrkun fjármagnsins og smánarlega stéttaskiptingu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Julian McMahon látinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Að standa með liðinu eða standa með grundvallarréttindum – hvað varð um Piers Morgan?

Að standa með liðinu eða standa með grundvallarréttindum – hvað varð um Piers Morgan?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“