fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

EES: Fullveldisafsal og stjórnarskrárbrot?

Egill Helgason
Mánudaginn 3. febrúar 2014 17:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orð Brynjars Níelssonar um Evrópska efnahagssvæðið hafa vakið mikla athygli. Þar segir Brynjar frá því hversu stór hluti starfs Alþingis fari í að innleiða tilskipanir sem koma frá Evrópusambandinu í gegnum EES. Því miður liggur þetta í þagnargildi í hinni afar ófrjóu og ómálefnalegu umræðu sem hér tíðkast um Evrópumál. Staðreyndin er nefnilega sú að með rökum sem eru gjarnan notuð gegn ESB aðild væri eins hægt að mæla sterklega fyrir því að Ísland gangi úr EES. En umræðan er ekki nógu heiðarleg til að komast á þann stað.

Brynjar sagði:

Þegar maður situr á þinginu og er að horfa á þetta, þá spyr maður sig auðvitað, væri ekki einfaldara að vera bara inni í Evrópusambandinu? EES-samningurinn, dugar hann eins og hann er núna eða þurfum við að endursemja það eitthvað?  Það eru alls konar hlutir í þessum samningi sem ég hef aldrei skilið af hverju við þurfum að fara eftir regluverki þeirra með og mér finnst ekki einu sinni tengjast þessum innri markaði í raun. Þetta er bara eitthvað sem hefur gerst og maður einhvern veginn situr með þetta í fanginu og veit ekki sitt rjúkandi ráð.

Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði, bregst við þessu á Facebook og segir:

Loksins! Loksins heiðarleg umræða um hugsanlega aðild Íslands að ESB byggð á staðreyndum fremur en fánýtu og innantómu sjálfstæðisgaspri. Staðreynd nr. 1: Samingurinn um aðild Íslands að EES felur í sér stórkostlegt afsal á fullveldi landsins. Staðreynd nr. 2: Samþykkt Alþingis 1993 um aðild Íslands að EES var brot á stjórnarskrá lýðveldisins. Staðreynd nr. 3. Að ýmsu leyti myndi ESB styrkja fullveldi Íslands því að við hefðum rétt til að eiga hlut í ákvörðunum á vettvangi ESB. Staðreynd nr. 4: Aðild Íslands að ESB þýðir formlega aðild að ríkjabandalagi sem hefur ýmsa þætti sambandsríkis (federal state).

Þjóðin ein á að velja um framtíðarskipan tengsla sinna við ESB. Við krefjumst þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna samhliða sveitastjórnarkosningum í vor!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun