fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025
Eyjan

Hittir á snöggan blett

Egill Helgason
Fimmtudaginn 17. september 2015 13:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er mikill aðdáandi gyðinga og þegar ég kem í borgir er ég yfirleitt fljótur að leita uppi hverfi þar sem þeir búa. Margir uppáhaldsrithöfundar mínir eru gyðingar – mistrúaðir reyndar. Það er makalaust hvað gyðingdómur hefur alið af sér mikið af andlegu afreksfólki. Ég hef lesið mikið um sögu gyðinga, ferðast um Ísrael, fannst Jerúsalem svo heillandi þegar ég kom þangað að ég dvaldist í þrjár vikur, hafði upprunalega ætlað að vera þrjá daga. Að sumu leyti má segja að Jerúsalem sé sturlaður staður, en mótvægi við hana er Tel Aviv sem er eins og hedónísk borg í Kaliforníu.

En ég hef líka ferðast um svæði Palestínumanna. För þangað vakti hjá mér hrylling og sorg. Alls staðar blasir við kúgun og óréttlæti. Það er búið að slíta hjartað úr landinu. Íbúarnir eru ekki frjálsir ferða sinna. Þeir hafa ekki aðgang að vatni þeir mega ekki ferðast á vegum sem eru ætlaðir fyrir forréttindafólkið, þá sem eru að ræna landinu.

Mannvonskan er yfirgengileg og þetta getur af sér siðspillingu sem breiðist út um allt ísraelska samfélagið.

Það þarf að leita allra leiða til að brjóta á bak aftur þetta kerfi – sem er í rauninni ekki annað en nýlendustefna í sinni grimmustu mynd. Ályktun Reykjavíkurborgar um að versla ekki við Ísrael nær kannski ekki langt, en hún vekur ofsafengin viðbrögð í Ísrael. Þetta hittir greinilega snöggan blett og það er ágætt, veitir ekki af ef einhvern tíma á að stöðva hið linnulausa og svívirðilega ofbeldi sem eyðileggur mannslíf í Palestínu og rænir Ísraela sálinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dagur B. Eggertsson: Krónuvextirnir eru þrefaldir á við evruvextina – hrikaleg byrði á íslensk heimili

Dagur B. Eggertsson: Krónuvextirnir eru þrefaldir á við evruvextina – hrikaleg byrði á íslensk heimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Undirhundur

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Undirhundur