fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025
Eyjan

Fótboltinn og húsnæðið

Egill Helgason
Mánudaginn 7. september 2015 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

18 til 20 þúsund manna leikvangur með þaki?  Jú, hvers vegna ekki?

Þó er er kannski óþarfi að grípa til klisjunnar menningarhúss.

Raunar yrðu þarna til forsendur til að fá hljómsveit eins og Rolling Stones til landsins – eða þá U2 ef einhvern langar að heyra í þeim hér á Fróni.

En væntanlega yrðu ekki sérlega mörg tilvik að uppselt væri á slíkan leikvang.

Sumir eru reyndar að þakka árangur íslenska fótboltalandsliðsins því að hér á landi hafa risið knattspyrnuhús – staðir þar sem börn og unglingar geta iðkað íþróttina að vetrarlagi. Sjálfsagt er nokkuð til í því.

Í því sambandi má þó benda á að einungis eitt slíkt hús er að finna í Reykjavík – það er í Grafarvogi. Ekkert  knatthús er að finna vestan Elliðaáa þar sem þó starfa félögin Valur, KR, Víkingur, Þróttur og að hluta til Fram.

En raunar er eitt sem maður tekur eftir í sambandi við Laugardalsvöllinn og það tengist túnrækt. Völlurinn er sléttur og iðjagrænn. Hér á árum áður þurfti lítið til að hann breyttist í flag – og alltaf voru blettir hjá markinu þar sem grasið hafði verið traðkað niður í svörð. Maður man eftir leikjum á Laugardalsvelli þar sem úrslitin réðust af því að bolti skoppaði á þúfu. Þetta eru að sönnu framfarir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur B. Eggertsson: Krónuvextirnir eru þrefaldir á við evruvextina – hrikaleg byrði á íslensk heimili

Dagur B. Eggertsson: Krónuvextirnir eru þrefaldir á við evruvextina – hrikaleg byrði á íslensk heimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Undirhundur

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Undirhundur