Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu er nú lokaður.
Það er hins vegar alltaf nóg af slúðri en það er BBC sem tók saman.
———–’
Ander Herrera veit ekki hvort hann vilji vera lengur hjá Manchester United en til 2019 þegar samningur hans er á enda. (Mundo)
Tottenham og West Ham vilja bæði fá Andre Gomes frá Barcelona. (Sport)
Everton vill fá Kamal Bafounta 16 ára miðjumann Nantes. (Star)
West Ham vill fá Danny Drinkwater frá Chelsea. (Telegraph)
Manchester City gæti lánað Manchester United Ethiad völlinn til að félagið geti stækkað Old Trafford. (Sun)
Framtíð Arsene Wenger ræðst mikið á hvernig allt fer í Evrópudeildinni.