fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Fyrstu tölur í norsku þingkosningunum: Hægri stjórn Ernu Solberg virðist halda

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 11. september 2017 19:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt fyrstu kosningaspá eftir lokun kjörstaða virðist Erna Solberg forsætisráðherra Noregs og formaður Hægri flokksins  halda velli með stjórn sína. Hér greiðir hún atkvæði fyrr í dag í heimaborg sinni Björgvin.

Stjórnarflokkarnir í Noregi virðast samkvæmt spá vinna 89 þingsæti á norska Stórþinginu. Núverandi stjórnarandstaða fær 80 sæti. Ríkisstjórn Ernu Solberg heldur þannig velli.

Norðmenn gengu til Stórþingskosninga í dag. Síðustu kjörstöðum var lokað núna klukkan 19:00 að íslenskum tíma en þá var klukkan 21:00 í Noreg.

Norska ríkissjónvarpið, NRK, birti fyrstu tölur og spá um úrslit strax eftir að kjörstaðir lokuðu.  Spáin er reiknuð út frá þeim atkvæðum sem þegar voru talin þegar kjörstaðir lokuðu. Það eru utankjörfundaratkvæði. Þau hafa þegar verið talin. Við þetta bætast svo atkvæði frá kjörstöðum sem lokuðu fyrir 21:00 og búið var að telja þá. Fjölmargir kjósendur kusu utan kjörfundar í ár, – rúmlega ein milljón manns eða 27,3% þeirra Norðmanna sem hafa kosningarétt. Spáin um úrslit byggir á þessum atkvæðum, er reiknuð út eftir líkani af kjörstjórn (Valgdirektoratet) og færð NRK til birtingar.

Þetta eru úrslit kosningaspánnar í prósentum (þingsæti innan sviga):

Framfaraflokkurinn (Fremskrittspartiet): 15,7 (29)

Frjálslyndi flokkurinn Vinstri (Venstre): 4 (7) – 4

Hægri flokkurinn (Höyre): 26,2 (47)

Kristilegi þjóðarflokkurinn (Kristelig folkeparti): 4 (3)

Lýðræðissinnar (Demokratene):

Miðflokkurinn (Senterpartiet): 9,4 (19)

Rautt (Rödt): 2,6 (1)

Sósíalíski vinstriflokkurinn (Sosialistisk venstreparti): 5,7 (11)

Verkamannaflokkurinn (Arbeiderpartiet): 27,5 (50)

Umhverfisflokkur Græningja (Miljöpartiet Grönt): 3,3 (1)

Barist er um 169 sæti á Stórþinginu. Stjórn með meirihluta þingsæta á bak við sig þarf þannig að vinna 85 sæti. Núverandi stjórn er mynduð af Hægri flokknum, Framfaraflokknum, Kristilega þjóðarflokknum og Frjálslynda flokknum Vinstri. Þeir halda sem sagt meirihluta sínum að því gefnu að fyrsta spá reynist rétt.

Erna Solberg heldur boltanum áfram verði fyrstu tölur og kosningaspá kjörstjórnar í Noregi að veruleika þegar talið hefur verið úr kjörkössum í Noregi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins