Ummæli Ólafs Þórðarsonar knattsyrnugoðsagnar hafa vakið mikla athygli en hann er í áhugaverðu spjalli við Gunnlaug Jónsson í Návígi á Fótbolta.net í dag.
Ólafur er 52 ára gamall en hann hefur ekki verið í fótboltanum síðan sumarið 2015 þegar hann var þjálfari Víkings.
Einn af þeim sem er óhress við Ólaf og ummæli hans er Helgi Seljan, sjónvarpsmaður á RÚV sem fer mikinn á Twitter.
Ólafur ólst upp á Akranesi og átti frábæran feril með félagsliði og landsliði. Hann ólst upp við mikla samkeppni á Akranesi sem var og er gríðarlegur knattspyrnubær.
Meira:
Verið að Rítalín-dópa börn frá unga aldri – „Það er verið að kerlingavæða þetta“
„Börn í dag alin upp í bómull og á brjósti til tvítugs“
Ólafur er ósáttur með það hvernig íslenskt samfélag er að breytast, hann telur það ekki gott.
„Það er verið að kerlingavæða þetta allt saman. Það má enginn stíga út fyrir línuna, það má ekki segja neitt. Ég hef ekkert á móti femínistum en karlmenn eru bara karlmenn og út á vellinum eru þetta dýrin í skóginum. Það má ekkert lengur,“ sagði Ólafur í viðtalinu
Við þetta og fleiri ummæli er Helgi ósáttur og skrifar. ,,Æ greyið steinþegiðu. Það að keyra vörubíl í Kraftgalla gerir þig ekki að einhverjum old wise man. Því síður að þú hafir geta reimað á þig takkaskó,“ skrifar Helgi.
„Það er algjör skandall hvernig þetta er orðið. Það er verið að Rítalín-dópa börn frá unga aldri. Ef ég væri barn í dag, þá væri ég á tvöföldum Rítalín-skammti. Við erum að drepa karakterinn í þessum börnum, í staðinn fyrir að reyna að koma þeim í einhverja útrás til að þau geti notað alla þessa orku og kraft sem í þeim býr,“ sagði Ólafur einnig.
Æ greyið steinþegiðu. Það að keyra vörubíl í Kraftgalla gerir þig ekki að einhverjum old wise man. Því síður að þú hafir geta reimað á þig takkaskó.
Verið að Rítalín-dópa börn frá unga aldri – „Það er verið að kerlingavæða þetta“ https://t.co/nTgA45EJ9P
— Georg Helgi Seljan (@helgiseljan) April 10, 2018