fbpx
Miðvikudagur 30.apríl 2025
Fréttir

Hótuðu að hætta vinnu við kísilver

ÍAV og United Silicon á hitafundi í Helguvík í gær – Verktakarnir ætluðu að leggja niður störf

Ritstjórn DV
Föstudaginn 3. júní 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnendur ÍAV hótuðu í gær að hætta framkvæmdum verktakafyrirtækisins við kísilver United Silicon í Helguvík. Forsvarsmenn fyrirtækjanna hittust þá á miklum hitafundi á verksmiðjulóðinni og komust að samkomulagi um að ÍAV, sem er aðalverktaki kísilversins, klári fyrsta áfanga þess fyrir júnílok. Samkvæmt heimildum DV kröfðust stjórnendur ÍAV að United Silicon greiddi útistandandi reikninga upp á hundruð milljóna króna. Eigendur kísilversins hafi aftur á móti kennt ÍAV um tafir á verkinu og því neitað að borga.

„Þetta var leyst. Þeir klára verkið 30. júní og fengu því 30 daga í viðbót. Nú þurfa þeir virkilega að spýta í lófana og manna verkið síðasta mánuðinn. Þeir hafa nú lofað að gera það og við erum nokkuð ánægðir með niðurstöðuna. Það var dálítil harka í samræðunum en á endanum voru menn sáttir,“ segir Magnús Garðarsson, stjórnarmaður og einn eigenda United Silicon.

Starfsmenn Securitas vöktuðu báða inngangana að verksmiðjulóð United Silicon í gær. Samkvæmt upplýsingum DV var viðvera öryggisfyrirtækisins á svæðinu aukin  í byrjun vikunnar.
Svæðið vaktað Starfsmenn Securitas vöktuðu báða inngangana að verksmiðjulóð United Silicon í gær. Samkvæmt upplýsingum DV var viðvera öryggisfyrirtækisins á svæðinu aukin í byrjun vikunnar.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Stríðsástand“

Samkvæmt upplýsingum DV höfðu nokkur fyrirtæki í byggingariðnaði, sem sinna undirverktöku fyrir ÍAV, keyrt mannskap sinn og tæki aftur til höfuðborgarinnar þegar fundurinn í gær hófst. Verktakafyrirtækið hafi gefið United Silicon frest til miðnættis síðasta fimmtudag til að greiða útistandandi reikninga. Á föstudagsmorgun hafi ÍAV svo hafið undirbúning að því að allir starfsmenn þess leggðu niður störf í hádeginu. Þegar blaðamann og ljósmyndara DV bar að garði, rétt fyrir hádegi, voru starfsmenn fyrirtækisins enn að störfum.

„Það er stríðsástand. Það er búið að ráða Securitas í að passa svæðið og við megum ekki fara út með neitt,“ sagði starfsmaður verktakafyrirtækis á svæðinu, sem vildi ekki láta nafns síns getið, í samtali við blaðamann.

Tveimur bílum öryggisfyrirtækisins Securitas hafði þá verið lagt við báða inngangana að verksmiðjulóðinni. Magnús segir Securitas eiga að gæta þess að enginn fari inn á lóðina sem ekki á þangað erindi.

Verktakar ÍAV voru enn við störf þegar blaðamaður og ljósmyndari DV voru staddir í Helguvík í gærmorgun. Samningafundur ÍAV og United Silicon stóð þá yfir.
Við vinnu Verktakar ÍAV voru enn við störf þegar blaðamaður og ljósmyndari DV voru staddir í Helguvík í gærmorgun. Samningafundur ÍAV og United Silicon stóð þá yfir.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Aðkoma þeirra að þessu hafði ekki beint með þessar deilur að gera en auðvitað passa þeir á hverjum degi að tæki og tól séu ekki tekin af svæðinu,“ segir Magnús.

Byrja í júlí

Fjárfesting vegna fyrsta áfanga kísilvers United Silicon nemur um tólf milljörðum króna en sú upphæð inniheldur kaup á ljósbogaofni sem kom hingað til lands í júlí í fyrra. Fyrirtækið vill flytja inn og reka þrjá sambærilega ofna til viðbótar á næstu tíu árum. Framleiðsla fyrirtækisins á að hefjast 15. júlí næstkomandi en þar er stefnt að 22.900 tonnum á ári. Fyrsta farmi fyrirtækisins af hráefni fyrir kísilverið var landað í Helguvík síðasta mánudag. Um var að ræða um sex þúsund tonn af steintegundinni kvarsi sem er notuð við kísilmálmvinnslu.

„Svona ágreiningur kemur oft upp við verklok. Þeir áttu að skila verkinu á miðvikudag, sem þeir gerðu ekki. Það var þó ekki óvænt en við erum búnir að sætta okkur við það núna,“ segir Magnús. Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Tveir menn reyndu að brjótast inn í hraðbanka

Tveir menn reyndu að brjótast inn í hraðbanka
Fréttir
Í gær

Pútín boðar þriggja daga vopnahlé í maí og fær blendin viðbrögð

Pútín boðar þriggja daga vopnahlé í maí og fær blendin viðbrögð