fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

„Börnin eru auðvitað framtíðin, ekki ég, hvað þá ég eftir 15 ár sem er farinn að bíða eftir að drepast“

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 18. apríl 2026 10:30

Brynjar Níelsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það skiptir máli fyrir hverja þjóð að hún viðhaldi sér, sama hvaða þjóð það er, fólk eignist börn og stofni fjölskyldu. Fyrsta lagi lærirðu mikið af því. Fara gegnum lífið og vera síðan bara einhvern veginn einn þegar þú ert orðinn gamall af því þú átt enga fjölskyldu ég held að það sé ekki þægilegt fyrir nokkurn mann,“

segir Brynjar Níelsson, lögmaður og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum, í Spjallinu með Frosta Logasyni.

Aðspurður um hvort Sjálfstæðisflokkurinn ætti að tala fyrir hvötum fyrir frekari barneignum svarar Brynjar játandi.

„Stærsta málið í því er að fólk komi yfir sig þaki, þá eru meiri líkur á að börnin komi.

Við niðurgreiðum nú þegar heilmikið, leikskólinn er niðurgreiddur, ýmis þjónusta sem menn fá. Ég held það snúist svolítið líka um hugarfar. Hugarfarið, þetta er svona áróður fyrir mikilvægi þess, líka bara fyrir sjálfan þig að eignast börn og hjálpa þeim sem geta ekki eignast börn, en vilja eignast börn. Börnin eru auðvitað framtíðin, ekki ég, hvað þá ég eftir 15 ár sem er farinn að bíða eftir að drepast. Menn verða að átta sig á hvar framtíðin liggur.“

Brynjar spyr hvort við teljum menningararfleifðina skipta máli, eða hvort að eitthvað skipti nokkuð máli.

„Hæfileg þjóðerniskennd er bara mikilvæg öllum stjórnmálamönnum í mínum huga, því það er þessi þjóð sem þú ert kosinn til að þjóna. Ég er ekki kosinn til að þjóna öllum heiminum.“

Segir hann þurfa að vinda ofan af rugli síðustu þriggja áratuga og það sé ekki einfalt. Búið hafi verið til kerfi sem virkar ekki.

„Við verðum að hugsa aðeins lengra. Hvað skiptir okkur máli? Það skiptir okkur máli öflugt atvinnulíf, velferð okkar byggist á því. Hvernig getum við séð framtíðina fyrir okkur?

Aðspurður um hvort hann sjái fyrir sér betra vaxtakerfi fyrir barnafjölskyldur, því fleiri börn sem þú átt því meiri hjálp færðu með vextina á íbúðaláninu.

„Svo er spurning hvort það hafi yfirhöfuð áhrif, ég bara veit það ekki. Þú sérð fólk koma í fjölmiðla og tilkynna að það ætli ekki að eignast börn, eins og það sé einhver dyggð. Ég er ekki á móti frelsinu, þú mátt alveg sleppa að eignast börn, en ég sé enga dyggð við það. Það er ekkert göfugt við það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“