fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fókus

Englaborg leitar nýrra eigenda

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 24. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin og listafólkið Tinna Gunnarsdóttir og Sigtryggur Bjarni Baldvinsson hafa sett einbýlishús sitt á Flókagötu 17 á sölu. Húsið heitir Englaborg og byggði Jón Engilberts listmálari það árið 1942 fyrir sig og fjölskyldu sína. Gunnlaugur Halldórsson arkitekt teiknaði húsið. Aðeins hafa tvær fjölskyldur búið í húsinu frá byggingu.

Húsið er 268,8 fm og skiptist í forstofu, stofu, setustofu, borðstofu og eldhús, og baðherbergi á fyrstu hæð.

Við forstofu er gengið upp á næstu hæð, fyrst tekur við rými/herbergi og síðan vinnustofa með ríflega fjögurra metra lofthæð. Vinnustofan (salurinn) gefur húsinu mikla sérstöðu enda fáheyrt að húseignir bjóði uppá aðstöðu af þessu tagi.

Á efstu hæð er herbergi með þakglugga. Á stigapalli við vinnustofuna og einnig við herbergið eru skolvaskar og á báðum hæðum möguleiki á að koma fyrir snyrtingu.

Í kjallara eru þrjú svefnherbergi, eitt þeirra hjónaherbergið er með baðherbergi, og þvottahús.

Stór og glæsilegur garður er umhverfis húsið með afar fallegum og fjölbreyttum tjágróðri. Steyptur garðveggur sem snýr að Flókagötu og Rauðarárstíg sem hannaður var af Kurt og Pí. Húsið stendur á um 650 fermetra lóð. Í garðinum eru nokkur, allt að 80 ára, hraust og falleg tré. Núverandi eigendur endurskipulögðu garðinn um aldamótin. Þá er einnig steinagarður í japönskum anda og fjölmörg blómabeð svo garðurinn er mjög fallegur frá vori til hausts.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Óvænt uppákoma í gærkvöldi þegar leikhúsgestur ákvað að siða leikarana til – „Þú kemur ekki á næstu sýningu“

Óvænt uppákoma í gærkvöldi þegar leikhúsgestur ákvað að siða leikarana til – „Þú kemur ekki á næstu sýningu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Staðin upp eftir fallið

Staðin upp eftir fallið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur hraunar af kaldhæðni yfir mjónulúkkið sem er að ryðja sér til rúms – „Hvetur líka feitabollurnar til að hora sig niður“

Ragnhildur hraunar af kaldhæðni yfir mjónulúkkið sem er að ryðja sér til rúms – „Hvetur líka feitabollurnar til að hora sig niður“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þekkt tónlistarkona gerði óhugnanlega uppgötvun á heimili sínu – Sjáðu myndbandið

Þekkt tónlistarkona gerði óhugnanlega uppgötvun á heimili sínu – Sjáðu myndbandið