

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar. Í þeim nýjasta tekur Ragga fyrir Loddaralíðan eða svipahrappsheilkennið (e. Imposter Syndrome).
Segir Ragga okkur sem af því þjáumst þurfa að útrýma heilkenninu sem fyrst.
„Þetta heilkenni lýsir sér í að eigin velgengni er skrifuð á einskæra heppni, góða tímasetningu og jafnvel misskilning. Þau eiga þessa velgengni engan veginn skilið,“
segir Ragga og tekur nokkur dæmi:
„Að fá atvinnutilboð hlýtur að þýðir að fáir sóttu um.
Tíu á prófi þýðir að prófið var mjög létt.
Hrós eru meðaumkun til að vera næs.
Vorkunn til þín fyrir að vera svona glataður.
Þú gerir lítið úr öllu hrósi.
Labbaði á Kilimanjaro…. æi það var fullt af gömlu fólki líka á fjallinu.
Þessi ræða var nú svosem ekki mín besta. Hikaði of oft.“
Að sögn Röggu er hins vegar annað upp á teningnum þegar kemur að velgengni annarra. Við teljum hana afleiðingu af stórkostlegum gáfum, hæfileikum, dugnaði og elju.
„Að sama skapi er loddaralíðan algjör vantrú á eigin gáfur, færni, hæfileika og eiginleika,“ segir Ragga og telur aftur upp dæmi:
„Ég mun klúðra þessu.
Ég er ekki hæf(ur) í þetta verkefni.
Ég get þetta ekki.
Mistök eru lóðrétt afleiðing af leti, aumingjagangi, heimsku og kæruleysi.
Ekki nógu samviskusamur.
Ekki nógu duglegur.
Ekki nógu gáfuð.
Ekki nógu undirbúin.
Gagnrýni er staðfesting á hörmunginni sem þú ert sem mannskepna.
Svo er rúsínan í SS pylsunni (eða pulsunni) að nú mun komast upp um þig og annað fólk uppgötva hversu mikil sóun á súrefni þú ert.
Nú kemst upp um mig.
Nú verð ég afhjúpuð sem brandari ársins.
Nú fatta þau að ég ég veit ekki neitt.“
Ragga nefnir að 70% fólks hefur upplifað svikahrappssyndróm eða loddaralíðan á einhverjum tímapunkti. Loddaralíðan finnist í öllum stéttum, kynjum og hjá fólki á öllum aldri. Tilfinningarnar sem við glímum við tengslum við svikahrappsheilkennið geta verið skömm, sjálfstraust í molum, streita, kvíði, kulnun, depurð og fleira.
Loddaralíðan takmarkar þig í að sækjast eftir tækifærum eða næra áhugasviðin, því þú ert auðvitað ekki nógu góð(ur) fyrir nokkurn skapaðan hlut
Til að komast yfir svikahrappsheilkennið gefur Ragga góð ráð:
Hafðu gott stuðningsnet og taktu upp tólið á vini og vandamenn og segðu þeim þegar þinn innri loddari er að garga bull og vitleysu. Þeir ættu að geta hrist hann af þér og minnt þig á að þú hefur hæfileika, eiginleika og styrkleika sem hafa stuðlað að þinni velgengni.