

Samband Kelly Osbourne og unnusta hennar, Sid Wilson, meðlims hljómsveitarinnar Slipknot, er búið.
Ástæðuna má rekja til þess að Osbourne hefur átt „ótrúlega erfitt“ tímabil eftir andlát föður hennar, Ozzy Osbourne, sem lést í júlí 2025.
„Þau reyndu að láta þetta ganga upp, sérstaklega fyrir barnið sitt, en ákváðu að lokum að aðskilnaður væri besta lausnin,“ segir heimildarmaður við Daily Mail. „Kelly hefur þolað mikið á síðasta ári. Þrátt fyrir allt er hún edrú og einbeitir sér nú að sjálfri sér og móðurhlutverkinu.“
Kelly og Wilson eiga saman þriggja ára gamlan son, Sidney.
Aðeins eru sjö mánuðir síðan að Sid bað Kelly að giftast sér á síðustu tónleikum Ozzy með Black Sabbath síðasta sumar. Parið var vinir í áratugi áður en þau hófu ástarsamband. Þau hittust fyrst þegar Slipknot hóf tónleikaferðalög með Ozzfest, tónlistarhátíðinni sem Ozzy og eiginkona hans Sharon Osbourne stofnuðu.