fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fókus

Stundaði kynlíf í sjúkrarúminu aðeins tveimur klukkutímum eftir barnsburð – Mænudeyfingin hjálpaði

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. mars 2026 22:30

Deborah er opnská með kynlífið. Skjáskot/iTV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bresk kona stundaði kynlíf með barnsföður sínum á sjúkrarúminu aðeins tveimur tímum eftir barnsburð. Hún segir að mænudeyfingin hafi hjálpað til.

Konan, Deborah Hodge frá London, greini frá þessu í viðtali á sjónvarpsstöðinni iTV í þætti þar sem verið var að fjalla um kynlíf eftir barnsburð. Mál sem er mikið tabú hjá mörgum pörum og jafn vel í samfélaginu öllu.

Sagði Deborah að hún hefði aldrei átt í vandræðum með að byrja að stunda kynlíf fljótlega eftir fæðingar allra fjögurra barnanna sinna. Eftir síðustu fæðingu, árið 2013, hafi hún stundað kynlíf tveimur tímum eftir fæðinguna, á sjúkrarúminu.

„Þar sem Amelíla mín lá í vöggunni sinni, vorum við parið að kúra í rúminu. Áður en ég vissi af vorum við byrjuð að stunda kynlíf,“ sagði hún.

Fann ekki sársauka

Hún var þá 39 ára en maki hennar 24 ára. Þau höfðu stundað kynlíf mjög reglulega á meðgöngunni, þrisvar eða fjórum sinnum í viku.

Eftir að hafa fætt stúlkuna fékk Deborah einkaherbergi til þess að jafna sig. Áhrif mænudeyfingarinnar voru ekki enn þá farin úr henni og segir hún að það hafi ábyggilega hjálpað til. Hún hafi ekki fundið fyrir neinum sársauka í samförunum.

„Við vorum bara svo ótrúlega náin. Mér fannst ég ekki vera kynþokkafull en mér fannst ég vera sérstök,“ sagði Deborah. „Ég trúði því varla að við hefðum gert þetta. Ég held að lyfin hafi valdið þessu.“

Ekki góð hugmynd að fresta

Parið stundaði aftur kynlílf þremur eða fjórum dögum seinna sem Deborah segir ekki óvanalegt hjá sér. Hún hafi stundað kynlíf innan tveggja vikna eftir allar sínar fæðingar. En hún og maki hennar séu reyndar skilin núna.

„Mér finnst að nýjar mæður ættu að fara fljótlega aftur á bak og stunda kynlíf,“ sagði Deborah. „Að fresta því er ekki góð hugmynd.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Óvænt uppákoma í gærkvöldi þegar leikhúsgestur ákvað að siða leikarana til – „Þú kemur ekki á næstu sýningu“

Óvænt uppákoma í gærkvöldi þegar leikhúsgestur ákvað að siða leikarana til – „Þú kemur ekki á næstu sýningu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Staðin upp eftir fallið

Staðin upp eftir fallið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur hraunar af kaldhæðni yfir mjónulúkkið sem er að ryðja sér til rúms – „Hvetur líka feitabollurnar til að hora sig niður“

Ragnhildur hraunar af kaldhæðni yfir mjónulúkkið sem er að ryðja sér til rúms – „Hvetur líka feitabollurnar til að hora sig niður“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekkt tónlistarkona gerði óhugnanlega uppgötvun á heimili sínu – Sjáðu myndbandið

Þekkt tónlistarkona gerði óhugnanlega uppgötvun á heimili sínu – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég er greinilega ekki bara einhver kennitala, fólki er í alvörunni ekki sama“

„Ég er greinilega ekki bara einhver kennitala, fólki er í alvörunni ekki sama“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sýnir afleiðingar andlitslyftingar – „Falleg manneskja fyrir aðgerðina“

Sýnir afleiðingar andlitslyftingar – „Falleg manneskja fyrir aðgerðina“