fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Fréttir

Fluttur á bráðamóttöku eftir stunguárás í miðbænum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 22. mars 2026 09:29

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðili var handtekinn í miðbænum í gær eftir að hafa stungið mann fyrir utan skemmtistað. Árásarþoli var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku en samkvæmt dagbók lögreglunnar liggur ekki fyrir hversu alvarlega áverka hann hlaut. Árásarmaðurinn var vistaður í fangaklefa.

95 mál voru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 í gær til klukkan 05 í nótt og í morgun voru 5 aðilar vistaðir í fangaklefa.

Hafði lögregla afskipti af ökumanni sem ók á móti umferð í Hlíðunum, en hann reyndist í mjög annarlegu ástandi sökum ölvunar og fíkniefna.

Óskað var eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað í miðbænum þar sem kona datt niður stiga, en hún var flutt á bráðamóttöku með sjúkrabifreið.

Aðili var handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna líkamsárásar í Múlahverfinu og annar var handtekinn í miðbænum þar sem hann var staðinn að sölu fíkniefna og gat hvorki framvísað skilríkjum né gert grein fyrir sér með öðrum hætti.

Óskað var eftir aðstoð lögreglu eftir að kona féll fram fyrir sig og slasaðist á andliti, en hún var flutt á bráðamóttöku með sjúkrabifreið.

Lögregla handtók svo aðila í Mosfellsbæ vegna framleiðslu fíkniefna. Ræktunin var tekin niður og efni og búnaður haldlögð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fær innan við 400 þúsund á mánuði eftir skatt – „Horfðu í augun á mér og segðu mér að ég sé vandamálið“

Fær innan við 400 þúsund á mánuði eftir skatt – „Horfðu í augun á mér og segðu mér að ég sé vandamálið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Akureyringur sem gekk við hækju átti sér einskis ills von þar til lögreglan fór mannavillt

Akureyringur sem gekk við hækju átti sér einskis ills von þar til lögreglan fór mannavillt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áætlunarakstur Strætó hættir í einu hverfi í Hafnarfirði – Samfylkingin segir ákvörðunina afdrifaríka

Áætlunarakstur Strætó hættir í einu hverfi í Hafnarfirði – Samfylkingin segir ákvörðunina afdrifaríka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Landsréttur staðfesti dóm yfir konu sem frelsissvipti og misþymdi Tinnu Guðrúnu Barkardóttur í Vinakoti

Landsréttur staðfesti dóm yfir konu sem frelsissvipti og misþymdi Tinnu Guðrúnu Barkardóttur í Vinakoti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vésteinn renndi yfir kortayfirlitið og fékk áfall – „Færslur, sem fengu hárin til að rísa“

Vésteinn renndi yfir kortayfirlitið og fékk áfall – „Færslur, sem fengu hárin til að rísa“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefjast úrbóta vegna heilsuspillandi aðstöðu lögreglunnar á Ísafirði

Krefjast úrbóta vegna heilsuspillandi aðstöðu lögreglunnar á Ísafirði