

Biobú hækkaði vörur sínar um 1% um síðustu mánaðamót. Helgi Rafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Biobú, segir að eigendur fyrirtækisins hafi ákveðið að hækka verð eins lítið og kostur var.
,,Eins og kunnugt er hækkaði verðlagsnefnd búvöru heildsöluverð á ógerilsneyddri mjólk nýverið sem tók gildi 16. febrúar síðastliðinn en hækkunin til Biobú nam 1%. Mér sýnist að markaðsráðandi aðili á mjólkurmarkað hafi hækkað sínar vörur á bilinu 1% til 1,44%, einnig hækkuðu margir innlendir framleiðendur verð um nýliðin áramót sumir hverjir um mun hærri %. Vill minna á að Biobú greiðir bændunum sem framleiða lífræna mjólk 35% álag á þá mjólk sem við kaupum af þeim,“ segir Helgi í tilkynningu.
,,Biobú býr við þá sérkennilegu stöðu að stundum er skortur á lífrænni mjólk en það stafar af því að bændurnir fjórir missa stundum mjólkurframleiðsluna niður tímabundið sem er auðvitað mjög bagalegt með þeim afleiðingum að við þurfum að sleppa að framleiða eitt eða fleiri vörunúmer eða skammta vörur til verslana. Við eigendur Biobú ákváðum að hækka verð eins lítið og kostur er. Okkar keppikefli er að geta boðið upp á lífræna gæðavöru sem er á samkeppnishæfu verði við aðrar mjólkurvörurvörur. Það var alveg tilefni að hækka eitthvað meira því okkar birgjar boðuðu verðhækkanir og einnig varð útkeyrsla dýrari og laun hækkuðu um nýliðin áramót. Við viljum fyrst og fremst geta boðið upp á hagstætt verð fyrir viðskiptavini okkar og neytendur.“
Síðasta sumar kom Biobú með nýja bragðtegund, sítrónu gríska í 200g sem hefur gengið mjög vel að sögn Helga. ,,Salan hefur aukist umtalsvert og varan á marga aðdáendur. Við vonumst til að geta boðið upp á sítrónu gríska í 500g einingu því stundum höfum við hráefni til að auka framleiðslu eitthvað og þá er gott að geta boðið upp á sítrónu gríska í 500g umbúðum. Við höfum hvatt bændur til að auka framleiðslu með þeim árangri að allir eru að auka hana um einhverjar prósentur, mis mikið en talsverð framleiðsluaukning er fyrirhuguð á árinu 2026. Við höfum gert ráðstafanir og stefnum á að taka í notkun nýja fernupökkunarvél í lok ársins þannig hægt verði að pakka meiri mjólk en mikill skortur er á lífrænni drykkjarmjólk. Einnig viljum við vera tilbúnir ef fimmti bærinn bætist í hóp þeirra sem framleiða lífræna mjólk en við erum nokkuð bjartsýnir á að nýr bóndi bætist í hópinn innan nokkurra missera.“