

Kiwanis-klúbburinn Mosfell í Mosfellsbæ heldur hvatningardaga í næstu viku og er markmiðið að fá börn og aðstandendur þeirra til að lesa saman og efla málþroska barna.
„Þetta er pilot-verkefni sem Mosfell ætlar að byrja með. Okkur langar að fara í forvarnir og hjálpa til þar, og leist svo vel á samstarf Kristínar og Sigrún, önnur rithöfundur og hin talmeinafræðingur, sem hafa sérhæft sig í að gefa út bækur sem auðvelda lestur og hjálpa með lesskilning hjá börnum. Þetta er framtak til að leggja okkar á vogarskálarnar þegar kemur að menntun og læsi barna,“
segir Hjalti Úrsus Árnason, meðlimur í Mosfell og formaður markaðsnefndar Kiwanis á Íslandi.

Hvatningadagurinn fer fram í Hlégarði í Mosfellsbæ þriðjudaginn 24. mars næstkomandi og hefst kl. 17.30.
Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur og Sigrún Alda Sigfúsdóttir talmeinafræðingur kynna bækur sínar og svara fyrirspurnum, en saman hafa þær gefið út barnabækur um vinina Amelíu og Óliver. Kiwanis mun niðurgreiða bækur þeirra á staðnum, hverja bók um 1.000 kr. Frítt er inn og eru börn hvött til að mæta með aðstandendum sínum. Öll eru velkomin.

Hjalti segir Kiwanis-hreyfinguna hafa komið að þungum málum í gegnum árin og meðal annars veitt styrki þar sem tekist er á við afleiðingar áfalla. Kiwanis var sem dæmi hvati að því að Píetasamtökin voru stofnuð, sem eru núna komin á ríkisfjárlög. Með þessu nýja verkefni langar Kiwanis að koma meira að forvörnum og jafnframt að gera samtökin sýnilegri í samfélaginu.
„Kiwanis-hreyfingin á Íslandi starfar mikið í þágu barna, og við höfum meðal annars gefið börnum reiðhjólahjálma og styrkt ýmis samtök, nú síðast með styrk til Einstakra barna. Með hvatningardögum langar okkur að gefa lestri barna hljóm í samfélaginu. Mosfell byrjar eins og áður sagði og draumur okkar er svo að verkefnið haldi áfram um allt land hjá öðrum Kiwanis klúbbum.“
Hjalti bendir einnig á að nýir meðlimir eru velkomnir í Mosfell og tilvalið að nýta tækifærið á hvatningadögum og kynnast félögum og starfinu. „Það er flott starf og bráðnauðsynlegt unnið hjá Kiwanis. Við fögnum nýjum félögum sem vilja starfa með okkur,“ segir Hjalti sem bendir á að eins og hjá flestum sjálfboðaliðasamtökum þá þarf nýliðun.
„Ég var á ráðstefnu í Evrópu nýlega og þar eru þeir að leggja mikla áherslu á aldurshópinn 18-30 ára, að fá yngri kynslóðina inn með okkur og hún kemur með nýja sýn inn í félagsskapinn.“

Um bókina Amelía og Óliver:
Amelía og Óliver er ríkulega myndlýst barnabók og í henni eru kennd 27 millilagsorð, það er orð sem börn heyra síður í töluðu máli en eru mjög mikilvæg þegar kemur að því að lesa sér til gagns. Fremst í bókinni eru leiðbeiningar um hvernig lestur bókarinnar nýtist sem best og á hverri opnu eru tekin fyrir eitt til tvö orð sem eru sérstaklega útskýrð. Aftast í bókinni er svo skemmtilegt verkefni þar sem hægt er að rifja upp orðin og fletta þeim upp í bókinni.
Markmiðið bókarinnar er fyrst og fremst að gleðja unga lesendur og aðstandendur þeirra en samhliða því að kenna ný orð í gegnum lestur og leik. Bókin hentar fyrir breiðan aldurshóp þar sem hún hentar vel til upplestur en er jafnframt aðgengilegt lesefni fyrir börn sem eru sjálf byrjuð að lesa.
Höfundar bókarinnar eru Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur og Sigrún Alda Sigfúsdóttir talmeinafræðingur. Herborg Árnadóttir er myndhöfundur og hönnuður bókar og kápu.