fbpx
Laugardagur 21.febrúar 2026
Pressan

Geispi getur verið meira en bara þreytumerki

Pressan
Laugardaginn 21. febrúar 2026 11:30

Geispi er ekki bara merki um þreytu. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú hefur örugglega geispað mörg þúsund sinnum án þess að hugsa nánar út í geispann. Andar djúpt að þér, geispar og svo er geispinn afstaðinn. Virðist ekki skipta neinu máli en það gerist meira í kollinum á okkur, þegar við geispum, en vísindamenn töldu áður fyrr.

Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að geispi er ekki bara merki um þreytu, heldur hefur hann áhrif á heilann á veg sem líkist ekki almennri öndun.

Vísindamenn við University of New South Wales í Ástralíu rannsökuðu 22 heilbrigðar manneskjur sem fóru í segulómun á höfði og hálsi.

Fólkið var skannað á meðan það geispaði og andaði djúpt þannig að hægt væri að bera viðbrögð líkamans saman.

Vísindamennirnir reiknuðu með að geispi og djúpur andardráttur myndu gefa næstum sömu niðurstöðuna. En þannig var það ekki, niðurstöðurnar voru gjörólíkar og breyttu skilningi vísindamannanna á því hvað geispi gerir.

Þegar þátttakendurnir geispuðu fór heilavökvinn frá heilanum á hátt sem hefur ekki sést við djúpa öndun. Blóðflæðið úr heilanum jókst á sama tíma en það bendir til að geispi sé sérstakt taugafræðilegt ferli, ekki bara stór innöndun. Vísindamennirnir telja að geispi geti gegnt hlutverki við að koma jafnvægi á í heilanum, meðal annars með því að hafa áhrif á hitastjórnun hans.

Biorvix og Unilad skýra frá þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Óhugnanlegt myndband úr verslun sýnir mann reyna að ræna eins árs stúlku

Óhugnanlegt myndband úr verslun sýnir mann reyna að ræna eins árs stúlku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir á yfir höfði sér 15 ára fangelsi eftir að hún skildi 1 árs son sinn eftir í sjóðheitum bíl á meðan hún fékk bótox í varirnar

Móðir á yfir höfði sér 15 ára fangelsi eftir að hún skildi 1 árs son sinn eftir í sjóðheitum bíl á meðan hún fékk bótox í varirnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvorki rauður eða gulur – Þetta er liturinn sem gáfað fólk kýs helst að sögn sálfræðinga

Hvorki rauður eða gulur – Þetta er liturinn sem gáfað fólk kýs helst að sögn sálfræðinga
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hver er dularfulli Þjóðverjinn sem kemur fyrir 7.461 sinni í Epstein-skjölunum?

Hver er dularfulli Þjóðverjinn sem kemur fyrir 7.461 sinni í Epstein-skjölunum?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Erfa börnin gáfnafarið frá föður eða móður? – Vísindamenn hafa loksins fundið svarið

Erfa börnin gáfnafarið frá föður eða móður? – Vísindamenn hafa loksins fundið svarið
Pressan
Fyrir 5 dögum

Venjulega konan sem fórnaði öllu til að giftast einum alræmdasta raðmorðingja Bandaríkjanna

Venjulega konan sem fórnaði öllu til að giftast einum alræmdasta raðmorðingja Bandaríkjanna