fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Valdatafl fram undan í Norður-Kóreu?

Pressan
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margt bendir til þess að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, sjái 13 ára dóttur sína fyrir sér sem framtíðarleiðtoga landsins.

Leyniþjónusta Suður-Kóreu heldur þessu fram og segir að sífellt fleiri merki um þetta séu farin að sjást. Á sama tíma telja sérfræðingar að systir hans, Kim Yo Jong, gæti einnig gert tilkall ef til valdaskipta kemur.

Telegraph fjallaði um þetta um helgina og segir í umfjöllun miðilsins að dóttirin, Kim Ju Ae, hafi í auknum mæli sést og komið fram opinberlega með föður sínum að undanförnu, meðal annars við eldflaugatilraunir, hersýningar og opnanir iðnaðarverkefna. Þá var hún viðstödd opinbera heimsókn föður síns til Kína á síðasta ári.

Sérfræðingar telja að þessi mikli sýnileiki sé óvenjulegur þar sem yfirleitt ríkir mikil leynd um fjölskyldu leiðtogans, og að hann kunni að vera liður í markvissri ímyndaruppbyggingu.

Þrátt fyrir það er ekki talið sjálfgefið að arftakan yrði átakalaus. Rah Jong Yil, fyrrverandi sendiherra Suður-Kóreu í Bretlandi og fyrrverandi aðstoðarforstjóri leyniþjónustu landsins, hefur bent á að Kim Yo Jong, yngri systir leiðtogans, njóti verulegs stuðnings innan stjórnkerfisins og hersins.

Að hans mati sé líklegt að hún myndi grípa tækifærið til að sækjast eftir æðstu völdum ef hún teldi raunhæfan möguleika á því.

„Það fer allt eftir tímasetningu, en ég tel að ef Kim Yo Jong teldi sig eiga raunhæfan möguleika á að verða æðsti leiðtogi landsins þá myndi hún grípa það tækifæri,“ sagði Rah í viðtalinu. „Fyrir hana eru engar augljósar ástæður til að halda aftur af pólitískum áformum sínum,“ sagði hann og bætti við að hann teldi allt eins líklegt að til valdabaráttu kæmi.

Þjóðaröryggis- og leyniþjónusta Suður-Kóreu segir að það yrði talið þýðingarmikið merki um stöðu Ju Ae ef hún myndi fylgja föður sínum á komandi flokksþing Verkamannaflokks Norður-Kóreu síðar í mánuðinum. Slík viðvera gæti styrkt þá túlkun að verið sé að búa hana undir stærra hlutverk í framtíðinni.

Í gegnum tíðina hafa fréttir borist af baktjaldamakki í norðurkóresku stjórnkerfi. Skömmu eftir að Kim Jong Un tók við völdum árið 2011 lét hann handtaka frænda sinn, Jang Song Thaek, fyrir að vinna gegn hagsmunum ríkisins. Jang Song var sakfelldur og leiddur fyrir aftökusveit árið 2013 og drepinn.

Þá er eftirminnilegt þegar hálfbróðir Kims, Kim Jong Nam – sem eitt sinn var talinn líklegur sem næsti leiðtogi landsins – var myrtur á alþjóðaflugvellinum í Kuala Lumpur í Malasíu árið 2017. Hinar grunuðu í málinu voru erlendir ríkisborgarar sem höfðu verið blekktar til að halda að þær væru að framkvæma saklaust gabb fyrir japanskan YouTube-þátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana