fbpx
Sunnudagur 08.febrúar 2026
433Sport

Tómas Blöndal-Petersson semur við Val

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. febrúar 2026 13:53

Tómas Petersson og faðir hans Alexander.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnudeild Vals hefur gert tveggja ára samning við markmanninn Tómas Blöndal-Petersson. Tómas, sem er fæddur árið 2009, er uppalinn Valsari og einn efnilegasti markvörður landsins. Hann hefur leikið fyrir bæði U17 og U18 ára landslið Íslands, auk þess sem hann hefur fengið mínútur með meistaraflokki Vals í vetur og staðið sig vel.

Bróðir Tómasar er Lúkas Petersson markvörður Hoffenheim og U21 árs landsliðsins, faðir þeirra er Alexander Petersson fyrrum landsliðsmaður í handbolta.

„Félagið er afar ánægt með að Tómas hafi ákveðið að skrifa undir sinn fyrsta samning við Val, enda er það skýr stefna félagsins að leggja ríka áherslu á þróun og uppbyggingu ungra leikmanna. Tómas hefur sýnt stöðugar framfarir, faglegt hugarfar og sterkan karakter, eiginleika sem skipta sköpum fyrir leikmenn sem stefna langt,“ segir á vef Vals.

Gareth Owen, tæknilegur stjórnandi knattspyrnudeildar Vals, segir. „Við erum afar ánægð með að tryggja okkur undirskrift Tómasar. Hann er markmaður með mikla hæfileika og sterkan karakter og við höfum mikla trú á honum. Við hlökkum til að vinna áfram náið með honum og sjá hann halda áfram að þróast og bæta sig á næstu árum.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hrósar foreldrum Greenwood – Segist hafa heimsklassa leikmann í dag

Hrósar foreldrum Greenwood – Segist hafa heimsklassa leikmann í dag
433Sport
Í gær

Furðaði sig á vini sínum í beinni – „Helgi, ég er ekkert að reyna að skora nein stig“

Furðaði sig á vini sínum í beinni – „Helgi, ég er ekkert að reyna að skora nein stig“
433Sport
Í gær

Guardiola segist ekki ætla að þegja þrátt fyrir gagnrýni

Guardiola segist ekki ætla að þegja þrátt fyrir gagnrýni
433Sport
Í gær

David Beckham sagður í algjöru sjokki yfir nýjasta útspili sonarins

David Beckham sagður í algjöru sjokki yfir nýjasta útspili sonarins
433Sport
Í gær

Van Dijk kallar eftir því að þessir sérfræðingar axli ábyrgð og verndi unga leikmenn

Van Dijk kallar eftir því að þessir sérfræðingar axli ábyrgð og verndi unga leikmenn
433Sport
Í gær

Vilja framlengja við hinn aldraða framherja

Vilja framlengja við hinn aldraða framherja