fbpx
Fimmtudagur 05.febrúar 2026
433Sport

Böðvar kynntur til leiks hjá ÍA – Útskýringin að hann hefði verið í minna hlutverki

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 13:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FH og ÍA hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Böðvars Böðvarssonar til síðarnefnda félagsins.

Böðvar er uppalinn hjá FH og hefur bara spilað með Hafnarfjarðarliðinu hér á landi, auk þess sem hann lék í Póllandi og Svíþjóð í atvinnumennsku.

Það kemur mörgum á óvart að FH sleppi Bövðari, sem hefur verið algjör lykilmaður, með reynslumestu mönnum og var varafyrirliði liðsins.

„Það er erfitt að kveðja Bödda en í ljósi þess að útlit var fyrir að hlutverk hans yrði minna í ár en síðastliðin tvö ár þá var þetta niðurstaðan. Böðvar hefur átt glæsilegan feril hjá FH og verður alltaf einn af okkur,“ segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH um skiptin í tilkynningu félagsins.

ÍA hefur verið virkt á leikmannamarkaðnum og fengið menn eins og Gísla Eyjólfsson og Guðmund Þórarinsson í vetur. Það er því ljóst að liðið ætlar sér stóra hluti á komandi sumri, eftir að hafa verið afar lengi í gang í fyrra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rashford teiknar upp plan B

Rashford teiknar upp plan B
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Varpa sprengju um Guardiola

Varpa sprengju um Guardiola
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þessi er líklegastur til að taka við Andra Lucasi og félögum

Þessi er líklegastur til að taka við Andra Lucasi og félögum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

City flaug inn í úrslitaleikinn – Tvö bestu lið Englands mætast á Wembley

City flaug inn í úrslitaleikinn – Tvö bestu lið Englands mætast á Wembley
433Sport
Í gær

Keppni hjá konunum hefst á alvöru leik á morgun

Keppni hjá konunum hefst á alvöru leik á morgun
433Sport
Í gær

Enn einu sinni að skipta um félag – Gæti tekið áhugavert skref

Enn einu sinni að skipta um félag – Gæti tekið áhugavert skref