fbpx
Mánudagur 16.febrúar 2026
433Sport

Varpa sprengju um Guardiola

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 09:30

Guardiola / Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það ríkir veruleg óvissa um framtíð Pep Guardiola hjá Manchester City. BBC segir frá.

Guardiola hefur náð mögnuðum árangri frá því hann tók við City 2016 en undanfarið hafa sögur um að hann gæti hætt í sumar orðið háværar.

BBC segir að það komi vel til greina að hann kalli þetta gott eftir leiktíðina, þó svo að samningur Spánverjans renni ekki út fyrr en eftir næstu leiktíð.

Það þykir allavega alveg ljóst að Guardiola mun ekki framlengja samning sinn og fer hann því í síðasta lagi eftir næstu leiktíð.

Nokkrir hafa verið mátaðir við stjórastólinn hjá City, fari Guardiola. Þar á meðal er Enzo Maresca, fyrrum stjóri Chelsea sem starfaði í akademíu City á árum áður. Er hann í miklum metum innan félagsins.

Á tíma sínum í Manchester hefur Guardiola unnið Englandsmeistaratitilinn sex sinnum, bikarinn tvisvar, deildabikarinn fjórum sinnum og Meistaradeildina einu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Láta City vita af verðmiðanum

Láta City vita af verðmiðanum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ólafur ræðir ítarlega um fyrstu mánuðina í Laugardal – „Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt“

Ólafur ræðir ítarlega um fyrstu mánuðina í Laugardal – „Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Áhugaverður landsliðshópur fyrir leiki gegn Spáni og Englandi – Tveir nýliðar

Áhugaverður landsliðshópur fyrir leiki gegn Spáni og Englandi – Tveir nýliðar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Breiðablik staðfestir kaupin á Ívari Erni

Breiðablik staðfestir kaupin á Ívari Erni
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrverandi starfsmaður Manchester United gagnrýnir leikmann liðsins – Segir hann hafa gjörbreyst með tímanum

Fyrrverandi starfsmaður Manchester United gagnrýnir leikmann liðsins – Segir hann hafa gjörbreyst með tímanum
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Vilja meina að þetta sé hrein og klár pilla á Manchester United

Vilja meina að þetta sé hrein og klár pilla á Manchester United
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Athæfi Ronaldo vekur athygli – Sjáðu myndbandið

Athæfi Ronaldo vekur athygli – Sjáðu myndbandið