fbpx
Mánudagur 16.febrúar 2026
433Sport

Greiddu honum þrjá milljarða í starfslokasamning en spöruðu samt

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 14:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raheem Sterling er talinn hafa fengið umtalsverða upphæð þegar hann samdi um að rifta samningi sínum við Chelsea með gagnkvæmu samkomulagi í síðasta mánuði. Þar með lauk þriggja og hálfs árs dvöl enska landsliðsmannsins hjá félaginu.

Sterling gekk til liðs við Chelsea frá Manchester City árið 2022 fyrir um 50 milljónir punda og skrifaði undir fimm ára samning með um 325 þúsund pund í vikulaun. Hann stóð þó ekki undir væntingum. Á síðasta tímabili var hann lánaður til Arsenal, þar sem hann skoraði eitt mark í 28 leikjum.

Eftir að hafa snúið aftur til Chelsea var Sterling settur utan hóps og æfði með öðrum leikmönnum sem voru úti í kuldanum. Þrátt fyrir brottför Enzo Maresca úr stjórastólnum var engin leið aftur inn í liðið og Chelsea staðfesti 28. janúar að samningnum hefði verið rift.

Samkvæmt Press Association afsalaði Sterling sér hluta af þeim launum sem hann átti eftir að fá samkvæmt samningi sínum, en þó er talið að Sterling hafi engu að síður fengið um 19–20 milljónir punda í uppgjör. Það hafi sparað Chelsea allt að 10 milljónir punda miðað við að halda honum út samningstímann.

Sterling er nú samningslaus og frjáls að semja við nýtt félag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Láta City vita af verðmiðanum

Láta City vita af verðmiðanum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ólafur ræðir ítarlega um fyrstu mánuðina í Laugardal – „Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt“

Ólafur ræðir ítarlega um fyrstu mánuðina í Laugardal – „Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Áhugaverður landsliðshópur fyrir leiki gegn Spáni og Englandi – Tveir nýliðar

Áhugaverður landsliðshópur fyrir leiki gegn Spáni og Englandi – Tveir nýliðar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Breiðablik staðfestir kaupin á Ívari Erni

Breiðablik staðfestir kaupin á Ívari Erni
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fyrrverandi starfsmaður Manchester United gagnrýnir leikmann liðsins – Segir hann hafa gjörbreyst með tímanum

Fyrrverandi starfsmaður Manchester United gagnrýnir leikmann liðsins – Segir hann hafa gjörbreyst með tímanum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vilja meina að þetta sé hrein og klár pilla á Manchester United

Vilja meina að þetta sé hrein og klár pilla á Manchester United
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Athæfi Ronaldo vekur athygli – Sjáðu myndbandið

Athæfi Ronaldo vekur athygli – Sjáðu myndbandið