fbpx
Miðvikudagur 04.febrúar 2026
433Sport

Helena til Víkings frá Val

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 21:30

Helena Ósk Hálfdánardóttir. Mynd: Víkingur R.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helena Ósk Hálfdánardóttir er gengin í raðir Víkings frá Val, en þetta var tilkynnt í dag.

Helena, sem er 25 ára gömul og á tæpa 200 meistaraflokksleiki með stórliðum Vals, Breiðabliks og FH, gerir tveggja ára samning við Víking.

Víkingur hafnaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð, sæti fyrir ofan Val á markatölu.

Tilkynning Víkings
Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir að Helena Ósk Hálfdánardóttir (f. 2001) hefur samið við félagið til næstu tveggja ára.

Helena kemur til liðs við Víking frá Val þar sem hún hefur verið síðustu tvö tímabil en þar á undan hjá FH og Breiðablik, en Helena hefur spilað 197 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 39 mörk. Einnig á Helena 23 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 4 mörk.

Gefum Einari Guðnasyni, þjálfara meistaraflokks kvenna orðið:

„Við erum mjög ánægð að fá Helenu í Hamingjuna. Helena er frábær sóknarmaður sem getur spilað allar 3 fremstu stöðurnar á vellinum og með góðan hægri fót. Hún passar vel inní hópinn okkar, leikmaður með reynslu en einnig með hungur í að gera betur.“

Hjartanlega velkomin í Hamingjuna Helena!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Grafa upp ummæli David og Victoriu sem varpa nýju ljósi á deiluna við elsta soninn – Var þetta upphafið af öllum vandræðunum?

Grafa upp ummæli David og Victoriu sem varpa nýju ljósi á deiluna við elsta soninn – Var þetta upphafið af öllum vandræðunum?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Áhugaverð ummæli ungu stórstjörnunnar

Áhugaverð ummæli ungu stórstjörnunnar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal í úrslitaleikinn

Arsenal í úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tvö stórlið íhuga að semja við Oxlade-Chamberlain

Tvö stórlið íhuga að semja við Oxlade-Chamberlain
433Sport
Í gær

Fyrirliði Tottenham sendir væna sneið á þá sem stjórna félaginu – Keyptu ekkert í gær

Fyrirliði Tottenham sendir væna sneið á þá sem stjórna félaginu – Keyptu ekkert í gær
433Sport
Í gær

Pabbinn sáttur með að þau ætli að gifta sig – Sameinar tvær þekktar fjölskyldur

Pabbinn sáttur með að þau ætli að gifta sig – Sameinar tvær þekktar fjölskyldur