fbpx
Þriðjudagur 17.febrúar 2026
433Sport

Tvö stórlið íhuga að semja við Oxlade-Chamberlain

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Celtic er sagt hafa áhuga á Alex Oxlade-Chamberlain. Sky Sports segir frá, en enski miðjumaðurinn, sem er 32 ára, er samningslaus og getur því skrifað undir þó félagaskiptaglugginn víða sé lokaður.

Oxlade-Chamberlain á að baki glæsilegan feril. Hann er uppalinn hjá Southampton en gekk til liðs við Arsenal árið 2011 fyrir um 12 milljónir punda. Þar lék hann í sjö ár og vann enska bikarinn þrisvar.

Liverpool keypti hann árið 2017 fyrir um 35 milljónir punda og varð hann meðal annars Englandsmeistari tímabilið 2019-2020 og vann Meistaradeildina með félaginu.

Hann gekk til liðs við Besiktas í Tyrklandi 2023. Samningi hans þar var rift í ágúst, en meiðsli settu strik sitt í dvöl hans.

Oxlade-Chamberlain æfir nú með Arsenal og Mikel Arteta, stjóri liðsins og fyrrum liðsfélagi hans hjá Skyttunum, útilokar ekki að semja við hann í kjölfar meiðsla Mikel Merino á miðsvæðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Á meðan Maguire baðaði sig á Íslandi skellti Bruno sér heim og vakti mikla athygli

Á meðan Maguire baðaði sig á Íslandi skellti Bruno sér heim og vakti mikla athygli
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Framkoma Mikel Arteta eftir leik í gær – Leit á þetta og keyrði bara í burtu

Framkoma Mikel Arteta eftir leik í gær – Leit á þetta og keyrði bara í burtu
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Láta City vita af verðmiðanum

Láta City vita af verðmiðanum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ólafur ræðir ítarlega um fyrstu mánuðina í Laugardal – „Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt“

Ólafur ræðir ítarlega um fyrstu mánuðina í Laugardal – „Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt“