fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Rosaleg breyting með Messi á svæðinu – Þetta er aukningin í tekjum frá komu hans

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Koma Lionel Messi til Inter Miami hefur haft gífurleg áhrif á félagið, bæði innan vallar sem utan. Samkvæmt nýjustu tölum hafa tekjur félagsins rokið upp frá um 56 milljónum dollara áður en Messi kom til félagsins og upp í um 200 milljónir dollara eftir komu hans.

Messi hefur ekki aðeins aukið tekjur heldur einnig skilað árangri á vellinum. Með honum í liðinu hefur Inter Miami unnið titla og vakið heimsathygli, sem hefur leitt til aukinnar miðasölu, styrktarsamninga og sölu á varningi.

Leikir liðsins hafa verið uppseldir oftar en áður og áhugi á félaginu hefur aukist verulega bæði í Bandaríkjunum og á alþjóðavísu.

Þessi uppgangur endurspeglast í verðmati félagsins. Inter Miami er nú talið verðmætasta félag MLS-deildarinnar, metið á um 1,35 milljarða dollara. Áhrif Messi fara því langt út fyrir mörk vallarins og hafa breytt stöðu félagsins á skömmum tíma.

Ljóst er að komu argentínska heimsmeistarans hefur markað tímamót í sögu Inter Miami og MLS-deildarinnar í heild.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum
Walker kallar þetta gott
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Real Madrid setur óvænt nafn á blað sitt

Real Madrid setur óvænt nafn á blað sitt
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Stjórn United ætlar að gefa sér góðan tíma

Stjórn United ætlar að gefa sér góðan tíma
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“