
Sunderland vann sannfærandi sigur á Burnley í lokaleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Liðið leiddi 2-0 í hálfleik með sjálfsmarki Axel Tuanzebe og marki Habib Diarra. Chemsdine Talbi innsiglaði sigurinn í seinni hálfleik með glæsilegu skoti.
Lokatölur 3-0. Sunderland er í áttunda sæti með 36 stig en Sunderland í því næstneðsta með 15, 11 stigum frá öruggu sæti.