

Rene Meulensteen, fyrrverandi þjálfari hjá Manchester United, telur líklegt að Kobbie Mainoo yfirgefi félagið á láni í janúar og segist alls ekki skilja hvers vegna Ruben Amorim neiti að spila honum með Bruno Fernandes.
Mainoo hefur komið tíu sinnum inn á sem varamaður í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og aðeins byrjað einn leik, gegn Grimsby í ágúst.
Fjöldi fyrrverandi United-stjarna, þar á meðal Paul Scholes, Nicky Butt og Rio Ferdinand, hafa hvatt Mainoo til að finna sér nýtt lið í janúar, eftir að félagið hafnaði láni til Napoli síðastliðið sumar.
Meulensteen, sem þjálfaði United í 12 ár undir stjórn Sir Alex Ferguson, segir að 20 ára miðjumaðurinn þurfi að spila reglulega. „Það er mögulegt að hann fari á lán í janúar. Hann reyndi að fara til Napoli í sumar en félagið stöðvaði það. Spilarar vilja leiktíma og Kobbie er engin undantekning. Hann getur ekki þróast á bekknum hjá United,“ segir Rene.
Hann skilur ekki af hverju Amorim setji Mainoo í beina samkeppni við Fernandes í stað þess að spila þeim saman. „Mainoo vann sér sæti í liðinu og enska landsliðinu með frábærum frammistöðum. Ég skil ekki af hverju þeir geta ekki spilað saman, kannski telur Amorim þá vera of líka. En ég myndi gjarnan sjá þá saman á miðjunni.“
Meulensteen bætir við að innkoma Matheus Cunha og Bryan Mbeumo hafi ýtt Fernandes aftar á völlinnm á kostnað Mainoo en viðurkennir að þar sem United sé að vinna leiki þurfi ungstirnið hugsanlega að bíða tækifæris síns.