
Þingmenn stjórnarandstöðunnar kváðu sér hljóðs á Alþingi í morgun um fundarstjórn forseta. Tilefnið var mál Ársæls Guðmundssonar skólameistara Borgarholtsskóla, en honum hefur verið tilkynnt að embætti hans verði auglýst þegar skipunartími hans rennur út á næsta ári. Stjórnarandstaðan gagnrýndi að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, væri ekki staddur í þingsal til að svara fyrir um málið.
Fyrstur var Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, en hann sagði ljóst að eitthvað stórvæglegt væri að hjá ráðherrum Flokks fólksins. Fyrir vikið minnti forseti Alþingis á að fundarliðurinn væri um fundarstjórn forseta. Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, sagði það vekja ugg að skólameistarinn hafi ekki fengið ráðningarsamning endurnýjaðan. Skólameistarar eigi að fá að sinna sinni vinnu án afskipta stjórnvalda. Forseti minnti Ingibjörgu sömuleiðis á að fundarstjórn forseta eigi að fjalla um fundarstjórn forseta.
Þá var komið að Guðlaugu Þór Þórssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokks.
„Virðulegi forseti. Ég er hér til að ræða fundarstjórn forseta. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að fréttir gærdagsins eru þess eðlis að sá ráðherra sem ber ábyrgð á þeim verkum þarf að svara fyrir þinginu. Ég vek athygli á því að í gær átti sá ráðherra að vera hér í dag til að svara óundirbúnum fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Um leið og fréttir bárust af þessari embættisfærslu þá fór sá ráðherra af listanum. Þetta snýr beint að fundarstjórn forseta. Við hljótum að fara fram á það að hér komi skýringar á þessum gjörðum hæstvirts ráðherra. Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að hann eins og aðrir ráðherrar hafa skrifað undir siðareglur ráðherra. Ég fer fram á það að forseti sjái til þess að við getum fengið skýringar á þessum gjörðum hæstvirts ráðherra. “
Þá upplýsti forseti að Guðmundur Ingi liggur á sjúkrahúsi og geti því ekki mætt til að svara fyrirspurnum stjórnarandstöðunnar.
Þetta svar sætti stjórnarandstaðan sig ekki við. Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sendi ráðherra batakveðju en tók fram að það sé liður í lýðræðinu að ráðherrar svari fyrirspurnum. Einstaka ráðherrar geti beðist undan eða tekið þá persónulegu ákvörðun að ræða ekki við einstaka fjölmiðla eða þáttastjórnendur, en þeir þurfi þó að koma í þingsal og svara spurningum þingmanna.
Forseti Alþingis ítrekaði þá að Guðmundur Ingi gæti ekki mætt til að svara fyrirspurnum því hann liggur á sjúkrahúsi.
Þá beindi stjórnarandstaðan spjótum sínum að því hvernig tilkynnt var um forföll ráðherra. Þótti sumum að rétt hefði verið að tilkynna það áður en þing hófst í morgun svo að stjórnarandstaðan hefði getað beint spjótum sínum annað. Guðlaugur Þór steig aftur í pontu og tók fram að hann hafi ekki vitað um stöðu ráðherra þegar hann kallaði eftir viðveru hans í fyrri ræðu. Það breytti því þó ekki að staðgengill Guðmundar þurfi að svara fyrir um málið.
Forseti benti á að staðgengli Guðmundar hafi verið bætt á lista fyrir óundirbúnar fyrirspurnir í gær og eins sitti forsætisráðherra fyrir svörum í dag.
Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði fjarveru ráðherra tilfinningalega.
„Fjarvera þessa ráðherra, sem ég dreg ekki í efa að hafi lögmæt forföll, er tilfinnanleg. Ef einhvern tímann var tilefni fyrir umboðsmann Alþingis til að stíga inn þá er það núna, þótt hæstv. forsætisráðherra þyki þetta ekki vera alvarleg mál. Mig langar til að hvetja forseta til að hlutast til um að viðkomandi ráðherrar verði hér til svara um leið og færi gefst. Þetta var um fundarstjórn forseta.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók fram að Guðmundur Ingi væri ekki alvarlega veikur og mögulega hefði verið hægt að tilkynna forföll hans með öðrum hætti. Hins vegar hafi enginn vitað að stjórnarandstaðan ætlaði að nota fundarlið um fundarstjórn forseta til að ræða um ráðherrann.
„Það er ekki um alvarlegt mál að ræða, ég vil bara að það komi fram svo að það sé ekki óþarfa dramatík um stöðu ráðherra. En það er vissulega svo að hann þurfti að fara á spítala í nokkra daga. Það er búið að gera mjög eðlilegar ráðstafanir vegna þess. Svona aðstæður koma upp. Þetta er óviðráðanlegt. Hefðum við getað tekið hringinn hér og tilkynnt þingheimi þetta fyrir þingfund? Kannski, en vitið þið, stundum bara teiknast málin svona upp.“
Kristún sat svo fyrir svörum í óundirbúnum fyrirspurnartíma þar sem hún tók fram að ekkert sé óeðlilegt við mál skólameistarans. Skipunartími hans sé að renna út og því hafi honum verið tilkynnt, í samræmi við lög, tímalega að embættið yrði auglýst og að honum væri frjálst að sækja um það aftur. Breytingar á starfinu séu fram undan og því ekki óeðlilegt að auglýsa embættið.