Leicester er búið að reka Ruud van Nistelrooy úr starfi knattspyrnustjóra, eins og við var búist.
Manchester United goðsögnin tók við um mitt tímabil í kjölfar þess að Steve Cooper var rekinn. Liðinu gekk skelfilega undir hans stjórn og skítféll úr ensku úrvalsdieldinni í vor.
Leicester leitar nú að næsta stjóra til að taka slaginn með liðinu í ensku B-deildinni. Hefur Sean Dyche til að mynda verið orðaður við liðið.
Van Nistelrooy er kominn í starfsleit, en hann hefur áður stýrt PSV í heimalandinu Hollandi, auk þess að vera bráðabirgðastjóri United um stutt skeið á síðustu leiktíð.