Ibrahima Konate varnarmaður Liverpool hefur hafnað nýju tilboði frá félaginu um að framlengja samning sinn.
Konate var sagður verulega svekktur með tilboðið og vill hærri laun en Liverpool er að bjóða.
Konate verður samningslaus hjá Liverpool næsta sumar og er talað um nýja Trent Alexander-Arnold sögu.
Trent ákvað að láta samning sinn renna út og fór til Real Madrid í sumar, spænska liðið er sagt hafa áhuga á Konate frítt næsta sumar.
Liverpool hefur hækkað launapakka sinn undanfarið með nýjum samningum við Mohamed Salah og Virgil van Dijk.
Þá hefur félagið keypt Florian Wirtz á 116 milljónir punda, félagið þarf því að horfa í launapakki sinn í heild þessa stundina.