fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fréttir

Svarar Dóru Björt fullum hálsi um málefni Grafarvogs – „Þetta er allt að því móðgun“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. júní 2025 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borgarfulltrúinn Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifaði í gær grein þar sem hún kom húsnæðisátaki borgarinnar í Grafarvogi til varna. Þar stendur til að þétta rækilega byggð en íbúar í Grafarvogi hafa harðlega mótmælt þessum áformum. Dóra Björg fullyrti að borgin hafi gengið langt til þess að mæta sjónarmiðum íbúa, ekki sé um ofurþéttingu að ræða og að óánægjuna megi að mestu rekja til yfirlýsingagleði „sjálfskipaðra fulltrúa Grafarvogs“. Ritstjóri miðilsins Grafarvogur.net, Jón G. Hauksson, hefur nú svarað grein Dóru Bjartar fullum hálsi. Sum ummæli borgarfulltrúans séu allt að því móðgun við íbúa, hún snúi hlutum á hvolf, fari með rangfærslur og hafi tekist að lesa afstöðu íbúa vitlaust.

Svargrein Jóns birtist hjá Vísi í dag en þar fer hann yfir grein Dóru Bjartar, lið fyrir lið. Meðal annars sakar hann borgarfulltrúann um að snúa orsök og afleiðingu á hvolf. Dóra Björt heldur því fram að uppbygging í borginni hafi gengið hægar en vonir stóðu til vegna verðbólgu og hárra vaxta. Hins vegar segir Jón að húsnæðisskorturinn hafi frekar stuðlað að verðbólgu og hærri vöxtum enda hafi borgin árum saman lagt áherslu á þéttingu frekar en að nema ný lönd.

Dóra Björt tali eins og innviðir Grafarvogs þoli fleiri íbúa. Það liggi þó fyrir að vegakerfi, skólar og heilsugæsla hverfisins séu þegar sprungin. Eins telur Jón það sérstakt að vísa til þess að það séu færri íbúðir áformaðar í þéttingu Grafarvogs en eru nú í byggingu í miðborginni.

„Dóra Björt getur ekki troðið niður íbúðum samhengislaust hér og þar í Grafarvogi við stofnbrautir með þeim rökum að um færri íbúðir sé að ræða en í miðborginni – en þéttingin þar hefur verið harðlega gagnrýnd og þéttingaríbúðir dýrari og fyrst og fremst fyrir þá efnameiri.“

Jón hafnar því með öllu að borgin hafi tekið tillit til athugasemda íbúa. „Þetta er allt að því móðgun. Samtal við íbúa hefur verið yfirborðskennt og fráleitt að halda því fram að tillögurnar hafi verið lagaðar að athugasemdum íbúa. Vilji íbúa okkar í Grafarvogi er mjög skýr: Við höfnum þessum áformum í einu og öllu – og höfum komið því áleiðis á mjög fjölmennum íbúafundum sem og sent á annað þúsund kröftug mótmæli inn í Skipulagsgáttina undanfarnar vikur.“

Eins sé það móðgun við íbúa að borgin sé þegar byrjuð að úthluta íbúðum með fyrirvara á þessum þéttingarreitum. Það hafði verið lágmarkskurteisi að bíða þar til breytt aðalskipulag hefur verið auglýst og staðfest. Eins sé galið að Dóra Björt haldi því fram að íbúum þyki eðlilegt að byggja meira innan Grafarvogs. „Þetta heitir að lesa salinn vitlaust“.

Jón hvetur Dóru Björt til að hætta við þessi áform enda muni þetta rústa innviðum hverfisins með stóraukinni umferð, með því að fjarlægja græn svæði, með því að byrgja útsýni og með því að svíkja íbúa sem keyptu fasteignir sínar í góðri trú um að hverfið væri fullskipulagt.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvað hafa margir sótt um vernd á Íslandi árið 2025 og hvaðan koma þeir?

Hvað hafa margir sótt um vernd á Íslandi árið 2025 og hvaðan koma þeir?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“