Pétur Viðarsson varnarmaðurinn knái er hættur við að hætta við og mun leika með FH í sumar.
Pétur greindi frá því síðasta haust að hann væri hættur en hann hefur nú tekið skóna fram og spilar áfram með FH.
„Hann er mættur aftur, einn ástsælasti leikmaður félagsins síðasta áratuginn. Pétur Viðarsson hefur náð samkomulagi við FH um að taka skónna af hillunni og leika með liðinu út tímabilið 2020. Þvílíkar gleðifréttir á þessum fallega þriðjudegi,“ segir í tilkynningu FH.
Hann er mættur aftur, einn ástsælasti leikmaður félagsins síðasta áratuginn. Pétur Viðarsson hefur náð samkomulagi við…
Posted by FHingar on Tuesday, 26 May 2020