fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Peningaflæði í íslenska boltanum: Djuric nálægt Gylfa í kaupverði – Þetta eru fimm dýrustu leikmennirnir í sögunni

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. mars 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KA staðfesti í dag kaup sín á Danijel Dejan Djuric sem verður næst dýrasti leikmaður í sögu Bestu deildar karla. Samkvæmt öruggum heimildum 433.is borgar KA 18 milljónir króna fyrir Djuric.

Djuric var seldur til Istra frá Víkingi fyrir rúmu ári síðan en hann fann ekki fjölina í Króatíu. Hjá Víkingi var hann einn besti leikmaður Bestu deildarinnar.

KA borgar þannig 125 þúsund evrur fyrir Djuric en sú upphæð skiptist á þrjú ár, félagið er vel í stakk búið til að borga þá upphæð enda seldi félagið Ívar Örn Árnason á 14 milljónir króna til Breiðabliks á dögunum.

Sú upphæð gæti meira segja hækkað því ef Breiðablik nær góðum árangri á næstu árum þarf félagið að borga 3 milljónir til viðbótar. Komist KA í Evrópu á næstu þremur árum þarf félagið að borga um 1,5 milljón til Istra í Króatíu.

Gylfi Þór Sigurðsson verður áfram dýrasti leikmaður í sögu Íslands en Víkingur borgaði 20 milljónir króna fyrir hann á síðasta ári þegar hann kom frá Val.

Það er hins vegar ljóst að það færist í aukana í Bestu deildinni að menn séu keyptir og það á verulegar upphæðir. Þannig hefur á síðustu tveimur tímabilum þetta aukist til muna.

Dýrustu leikmennirnir í sögu íslenska boltans:
Gylfi Þór Sigurðsson – 20 milljónir (Frá Val í Víking árið 2025)
Danijel Djuric – 18 milljónir (Frá Istra í KA 2026)
Óli Valur Ómarsson – 15 milljónir (Frá Sirius í Breiðablik árið 2025)
Ívar Örn Árnason – 14 milljónir (Frá KA í Breiðablik árið 2026)
Benedikt Waren – 13 milljónir (Frá Vestra í Stjörnuna árið 2025)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Albert með sigurmark í lokin – Slakt hjá Crystal Palace

Albert með sigurmark í lokin – Slakt hjá Crystal Palace
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Elías og félagar með glæsilegan sigur í Nottingham

Elías og félagar með glæsilegan sigur í Nottingham
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sverrir með bandið í frábærum sigri – Á brattann að sækja fyrir Hákon og félaga

Sverrir með bandið í frábærum sigri – Á brattann að sækja fyrir Hákon og félaga
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Nokkrir möguleikar á borðinu fyrir Lewandowski – Hugsanlega áfram eftir allt saman

Nokkrir möguleikar á borðinu fyrir Lewandowski – Hugsanlega áfram eftir allt saman
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Vill burt frá Manchester United í sumar

Vill burt frá Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Dyche meðvitaður um áhuga Tottenham – Tudor stýrir líklega á Anfield

Dyche meðvitaður um áhuga Tottenham – Tudor stýrir líklega á Anfield