fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Nóg að gera á skrifstofu KA í dag – Staðfesta komu Samuel Kroon

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. mars 2026 10:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samuel Kroon skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KA og er þetta önnur öflug styrking knattspyrnudeildar KA í dag en fyrr í dag gekk Danijel Dejan Djuric í raðir félagsins.

Samuel sem er 29 ára gamall og kemur frá Svíþjóð er öflugur leikmaður sem getur bæði leikið sem kantmaður og bakvörður.

Samuel gengur í raðir KA frá sænska liðinu Örebro en þar hafði hann leikið frá árinu 2023, með Örebro lék hann 71 leik og gerði í þeim 9 mörk en flestir leikirnir komu í sænsku Superettan deildinni. Hann hefur leikið allan sinn feril í Svíþjóð en fyrir komu sína í Örebro lék hann í Allsvenskan, efstu deild í Svíþjóð, með liðum IF Brommapojkarna og Halmstads BK. Þá hefur hann einnig leikið með Umeå FC, Nyköpings BIS og Bele Barkarby FF.

„Það verður virkilega gaman að sjá hvernig Samuel smellur inn í lið KA en Samuel er fjölhæfur leikmaður sem eins og áður segir getur bæði leikið sem kantmaður og bakvörður. Það er ljóst að koma hans mun styrkja hópinn fyrir komandi átök og ætlumst við til mikils af þessum öfluga kappa í gula og bláa búningnum en fyrsti leikur KA í Bestudeildinni í sumar er 12. apríl næstkomandi þegar strákarnir okkar taka á móti Stjörnunni á Greifavellinum,“ segir á vef KA.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Potter gerir langtímasamning

Potter gerir langtímasamning
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Horfa til Chelsea ef þeir komast ekki í Meistaradeildina

Horfa til Chelsea ef þeir komast ekki í Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Mótherji Tottenham hjólar í Igor Tudor

Mótherji Tottenham hjólar í Igor Tudor
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Erlendur áhrifavaldur hafður að háði og spotti eftir heimsókn til Íslands – Myndband

Erlendur áhrifavaldur hafður að háði og spotti eftir heimsókn til Íslands – Myndband
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hafði áhyggjur af Greenwood og vildi selja hann síðasta sumar

Hafði áhyggjur af Greenwood og vildi selja hann síðasta sumar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Segir Rapinoe vera hræsnara – Styður ekki opinberlega við konur í lífshættu

Segir Rapinoe vera hræsnara – Styður ekki opinberlega við konur í lífshættu