fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Eiður Smári ráðleggur Jóhanni Berg – Gæti hann endað í Breiðablik á næstu vikum?

433
Föstudaginn 13. mars 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjörvar Hafliðason, sjálfur Dr. Football velti því fyrir sér í þætti sínum í dag hvort Jóhann Berg Guðmundsson gæti endað í herbúðum Breiðabliks á næstu vikum.

Jóhann Berg rifti samningi sínum við Al Dhafra í Abu Dabí á dögunum og er án félags. Jóhann er 35 ára gamall og hefur spilað 102 landsleiki fyrir Ísland.

„Jóhann Berg er á landinu, hann er 35 ára gamall. Það er ástand í Mið-Austurlöndum og hann er farin frá félaginu sínu,“ sagði Hjörvar og spurði Eið Smára Guðjohnsen hvað hann myndi gera í sporum Jóhanns.

„Þegar þú ert komin á þennan aldur og líkaminn er þokkalegur, þá myndi ég spila eins lengi og þú getur. Ferilinn hjá mér breyttist eftir þrítugt, meiðsli. Þú lærir, ég fór til Belgíu og setti mér það markmið að fara með landsliðinu á EM. Það hélt mér gangandi í nokkur ár, bara að njóta þess,“ sagði Eiður Smári.

Hann segir hugarfar manna breytast með aldrinum. „Það kemur allt annað hugarfar, maður fer að meta það miklu meira eftir þrítugt en þegar maður er tvítugur og heimskur. Þegar maður heldur að maður sé the shit.“

Hjörvar sér það ekki fyrir sér að Jóhann fari í annað lið en Breiðablik en hann fór í atvinnumennsku fyrir átján árum. Þá var Jóhann seldur frá Breiðablik til Hollands, hann lék svo í tíu ár á Englandi áður en hann fór til Sádí Arabíu og þaðan til UAE.

„Ég held að hann sé ekki týpan að spila fyrir annað lið en Breiðablik. Ég sá hann um daginn, hann leit vel út og lítur út eins og alvöru leikmaður. Ég vil sjá hann spila.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Starfsmaður skemmdi 50 milljóna króna Ferrari bíl síðustu helgi

Starfsmaður skemmdi 50 milljóna króna Ferrari bíl síðustu helgi
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Jay-Z sækist í unga leikmenn United – Stofa hans stækkar og stækkar

Jay-Z sækist í unga leikmenn United – Stofa hans stækkar og stækkar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Trent sparar ekki stóru orðin

Trent sparar ekki stóru orðin
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Chelsea hefur áhuga á leikmanni Arsenal sem sagður er ósáttur

Chelsea hefur áhuga á leikmanni Arsenal sem sagður er ósáttur
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sverrir með bandið í frábærum sigri – Á brattann að sækja fyrir Hákon og félaga

Sverrir með bandið í frábærum sigri – Á brattann að sækja fyrir Hákon og félaga
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Nokkrir möguleikar á borðinu fyrir Lewandowski – Hugsanlega áfram eftir allt saman

Nokkrir möguleikar á borðinu fyrir Lewandowski – Hugsanlega áfram eftir allt saman
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vilja Kinsky burt eftir hörmungar vikunnar

Vilja Kinsky burt eftir hörmungar vikunnar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vill fá svör um framtíð sína vegna áhuga frá Madríd

Vill fá svör um framtíð sína vegna áhuga frá Madríd