

Bandaríska knattspyrnugoðsögnin Megan Rapinoe hefur sætt gagnrýni eftir að hafa ekki tjáð sig opinberlega um stöðu íranska kvennalandsliðsins í knattspyrnu.
Fimm leikmenn úr hópi Írans á Asíumóti kvenna 2026 fengu nýverið hæli í Ástralíu, sem hélt mótið, eftir að spenna jókst í heimalandinu.
Leikmennirnir óttuðust mögulegar afleiðingar heima fyrir, meðal annars eftir að liðið sleppti því að syngja þjóðsöng Írans fyrir leik gegn Suður-Kóreu. Ríkissjónvarp í Íran gagnrýndi leikmennina harðlega og kallaði þær meðal annars svikara á stríðstímum.
Eftir að Íran féll úr keppni buðu áströlsk yfirvöld leikmönnum sem óttuðust hefndaraðgerðir að sækja um hæli í landinu.

Breski sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan hefur gagnrýnt Rapinoe fyrir þögn sína í málinu. Hann skrifaði á samfélagsmiðlinum X að þögn hennar og annarra sem segjast berjast fyrir réttindum kvenna væri „táknræn, fordæmanleg og merki um hræsni“.
Morgan vísaði einnig til fyrri stuðnings Rapinoe við þátttöku trans íþróttafólks í kvennaíþróttum og sagði að sumir vildu frekar berjast fyrir þeim málstað en að styðja írönsku leikmennina.
Ummæli Morgans komu í kjölfar pistils í New York Post þar sem einnig var gagnrýnt hvernig umræðan um málið hefði þróast. Rapinoe hefur enn ekki tjáð sig opinberlega um stöðu íranska liðsins.