

Neymar lék ekki með Santos í vikunni og hefur þar með misst af leik á afmælisdegi systur sinnar í 11. sinn á síðustu 12 árum.
Brasilíski framherjinn, sem er 34 ára gamall, var hvíldur þegar Santos gerði 1-1 jafntefli við Mirassol í brasilísku A-deildinni á þriðjudagskvöld. Félagið sagði ákvörðunina hafa verið tekin af varúð eftir nokkrar skoðanir fyrir leikinn og að Neymar væri ekki talinn alvarlega meiddur.
Þrátt fyrir það hefur málið vakið athygli meðal stuðningsmanna þar sem Neymar hefur ítrekað misst af leikjum í kringum 11. mars, sem er afmælisdagur systur hans, Rafaellu Santos.
Systkinin eru sögð mjög náin. Neymar er með húðflúr af andliti Rafaellu á handleggnum og Rafaella er með húðflúr af augum bróður síns á bakinu.
Neymar svaraði gagnrýninni á samfélagsmiðlum og sagðist þreyttur á samsæriskenningum um fjarveru sína.
„Það eru margir sem búa til sögur um það sem er að gerast hjá mér,“ sagði hann.
„Ef ég spila meiddur er það rangt. Ef ég passa upp á heilsuna er það líka rangt. Ef ég spila með verki er það rangt.“
Hann bætti við. „Það sem kemur mér mest á óvart er að fólk sem virðist fylgjast með mér á hverjum degi byrjar að búa til sögur og heldur að það hafi allan sannleikann. Það er ekki auðvelt að vera ég.“