

Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Bayern München, hefur hrósað Michael Olise í hástert og telur að franski kantmaðurinn hafi allt til að verða einn besti leikmaður heims.
Kompany segir að Olise hafi komið til félagsins með rétt hugarfar til að ná langt í fótboltanum. „Michael Olise kom hingað með hugarfar sem gefur honum möguleika á að verða einn besti leikmaður heims,“ sagði Kompany.
Belginn sagðist þó ekki vilja bera leikmenn of mikið saman, en minntist engu að síður á fyrrum liðsfélaga sinn Kevin De Bruyne.
„Ég vil ekki endilega bera leikmenn saman en ég spilaði með Kevin De Bruyne og var heppinn að sjá hann koma fram sem ungan leikmann og síðan verða að stórstjörnu. Hann hafði þessa þráhyggju fyrir smáatriðum.“
Kompany telur að Olise hafi svipaða eiginleika. „Michael Olise hefur þetta líka,“ bætti hann við.
Olise hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína og Kompany telur að einbeiting hans og vinnusemi geti hjálpað honum að ná langt á ferlinum.