

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að ekki eigi að draga of miklar ályktanir um styrk enskra liða í Evrópukeppnum eftir eina slæma viku.
Nokkur lið úr ensku úrvalsdeildinni áttu erfitt uppdráttar í Meistaradeild Evrópu í síðustu umferð. Liverpool tapaði fyrir Galatasaray í Istanbúl, Arsenal gerði jafntefli við Bayer Leverkusen á útivelli og Newcastle gerði 1-1 jafntefli við Barcelona á heimavelli.
Slot viðurkenndi að tap Liverpool hafi verið vonbrigði, sérstaklega eftir fyrstu mínúturnar í leiknum, en taldi muninn á liðunum hafa verið lítinn. „Að draga stórar ályktanir eftir einn leikdag er ekki skynsamlegt. Úrtakið er einfaldlega of lítið,“ sagði Slot.
„Kannski verðum við með allt aðra niðurstöðu eftir leikina í næstu viku.“
Hann nefndi einnig að ensk lið hefðu ekki vetrarfrí líkt og mörg lið í öðrum deildum Evrópu, sem gæti haft áhrif, en vildi þó ekki kenna því alfarið um úrslitin. „Ég segi ekki að liðin hafi tapað vegna þess að við höfum ekki vetrarfrí. Í 16-liða úrslitum Evrópukeppna mætir maður einfaldlega mjög sterkum liðum,“ bætti hann við.
Slot benti einnig á að fjögur af fimm enskum liðum í Meistaradeildinni hefðu spilað á útivelli, sem sé oft erfiðara. Að hans mati sé því of snemmt að efast um styrk ensku úrvalsdeildarinnar.