fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Á möguleika að skrifa söguna með Ronaldo og Messi í sumar – Gætu spilað á sínu sjötta HM

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. mars 2026 10:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mexíkóski markvörðurinn Guillermo Ochoa gæti skrifað nafn sitt í sögubækurnar ef hann verður valinn í landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið í sumar.

Ochoa, sem er orðinn 40 ára gamall, á möguleika á að taka þátt á sínu sjötta heimsmeistaramóti. Hann hefur áður verið í hópi Mexíkó á mótunum 2006, 2010, 2014, 2018 og 2022 og spilað á þremur þeirra.

Ástæðan fyrir því að möguleiki hefur opnast er sú að aðalmarkvörður Mexíkó, Ángel Malagón, meiddist og verður því frá um tíma.

Ef Ochoa kemst í hópinn myndi hann ganga í hóp með stórstjörnum á borð við Lionel Messi og Cristiano Ronaldo sem einnig eiga möguleika á að taka þátt á sínu sjötta Heimsmeistaramóti.

Samkeppnin um markvarðarstöðurnar er þó hörð þar sem Ochoa berst við Tala Rangel, Carlos Acevedo og Carlos Moreno um sæti í þriggja manna markvarðarhópi Mexíkó.

Ochoa hefur ekki spilað landsleik síðan árið 2024 en hefur samtals leikið 151 leik fyrir Mexíkó.

Frægasti leikur hans kom á heimsmeistaramótinu 2014 þegar hann átti stórleik gegn Brasilíu í riðlakeppninni og varði meðal annars stórskot frá Neymar, Thiago Silva og Paulinho.

Ochoa leikur nú með kýpverska liðinu AEL Limassol og nýtur áfram mikillar virðingar meðal stuðningsmanna í heimalandi sínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Albert með sigurmark í lokin – Slakt hjá Crystal Palace

Albert með sigurmark í lokin – Slakt hjá Crystal Palace
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Elías og félagar með glæsilegan sigur í Nottingham

Elías og félagar með glæsilegan sigur í Nottingham
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sverrir með bandið í frábærum sigri – Á brattann að sækja fyrir Hákon og félaga

Sverrir með bandið í frábærum sigri – Á brattann að sækja fyrir Hákon og félaga
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Nokkrir möguleikar á borðinu fyrir Lewandowski – Hugsanlega áfram eftir allt saman

Nokkrir möguleikar á borðinu fyrir Lewandowski – Hugsanlega áfram eftir allt saman
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Vill burt frá Manchester United í sumar

Vill burt frá Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Dyche meðvitaður um áhuga Tottenham – Tudor stýrir líklega á Anfield

Dyche meðvitaður um áhuga Tottenham – Tudor stýrir líklega á Anfield