fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Þarf að borga 57 milljónir í skaðabætur fyrir tvær færslur á X-inu

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eni Aluko, fyrrum landsliðskona Englands og knattspyrnusérfræðingur í fjölmiðlum, hefur lýst yfir mikilli ánægju eftir að hafa unnið meiðyrðamál gegn Joey Barton fyrir dómstólum.

Barton hefur verið dæmdur til að greiða Aluko samtals 339 þúsund pund í skaðabætur og lögfræðikostnað eftir að hún höfðaði mál gegn honum vegna tveggja færslna sem hann birti á samfélagsmiðlinum X árið 2024. Samkvæmt fréttum þarf Barton að greiða fyrstu 100 þúsund pundin, auk vaxta, fyrir 24. mars.

Málið var tekið fyrir hjá Hæstarétti í London þar sem ákveðið var að stöðva frekari málsmeðferð, en Barton þarf þó að greiða verulegar skaðabætur auk alls lögfræðikostnaðar Aluko.

Eftir niðurstöðuna birti Aluko myndband á samfélagsmiðlum þar sem hún gengur út frá Royal Courts of Justice með þumalinn upp. Yfir myndbandinu stóð textinn. „Við náðum marklínunni.“

Í færslu með myndbandinu þakkaði hin 39 ára gamla Aluko öllum sem höfðu stutt hana á meðan málið stóð yfir.

Aluko hefur starfað sem sérfræðingur í knattspyrnu eftir að hún lagði skóna á hilluna og hefur verið áberandi rödd í umræðum um fótbolta í Bretlandi. Málið gegn Barton hefur vakið mikla athygli í enskum fjölmiðlum undanfarin misseri.

Það er mikið í gangi í lífi Barton en á sunnudag var hann handtekinn grunaður um að hafa beitt annan mann grófu ofbeldi eftir golfhring.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Nokkur úrvalsdeildarlið með augastað á Norðmanninum

Nokkur úrvalsdeildarlið með augastað á Norðmanninum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

De Gea og Rúnar Alex styðja við bakið á Kinsky eftir martröð gærkvöldsins

De Gea og Rúnar Alex styðja við bakið á Kinsky eftir martröð gærkvöldsins
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Er orðinn sextugur en kærusturnar verða sífellt yngri – Stundaði kynlíf með þremur konum á einum degi

Er orðinn sextugur en kærusturnar verða sífellt yngri – Stundaði kynlíf með þremur konum á einum degi