Harvey Elliott miðjumaður Liverpool er líklegur til þess að fara frá félaginu í sumar, hann vill fá meiri spilatíma.
Elliott er 22 ára gamall og var ekki stóru hlutverki hjá Arne Slot á liðnu tímabili.
Sagt er í enskum miðlum í dag að líklegast sé að Elliott fari til Ítalíu í sumar.
Nokkur lið í Seriu A hafa áhuga á kappanum sem hefur átt fína spretti í treyju Liverpool.
Það má einnig búiast við því ef Elliott verður áfram að spilatími hans minnki með komu Florian Wirtz.