Jobe Bellingham, bróðir Jude Bellingham, er búinn að taka ákvörðun um að ganga í raðir þýska stórliðsins Borussia Dortmund.
Blaðamaðurinn virti Fabrizio Romano greinir frá en Bellingham hefur verið orðaður við hin ýmis félög.
Miðjumaðurinn er ákveðinn í að taka sama skref og bróðir sinn gerði á sínum tíma en hann hélt til Dortmund og síðar Real Madrid.
Bellingham spilar með Sunderland sem spilar í efstu deild Englands á næsta tímabili og mun ekki selja fyrir minna en 40 milljónir evra.
Bellingham er gríðarlega efnilegur leikmaður og verður erfitt fyrir Sunderland að fylla hans skarð fyrir erfiðan næsta vetur.