Segja má að kúvending hafi orðið í Vesturbæ eftir að Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við og er liðið nú orðið það yngsta í deildinni.
Leifur Grímsson sérfræðingur í fótbolta segir frá þessu á X-inu.
Óskar er óhræddur við að spila ungum drengjum og ætlar sér að byggja upp lið til framtíðar.
Tölfræði eftir 10 umferðir í Bestu deild karla. Meðalaldur liða og hlutfall uppaldra leikmanna pic.twitter.com/ftXQQtIYdY
— Leifur Grímsson (@lgrims) June 4, 2025
Mikið hefur rætt og ritað um það að félög hér á landi þurfi að þora að spila á yngri mönnum. KA er með elsta lið deildarinnar á þessu tímabili en meðalaldur liðsins er yfir þrjátíu ár.
Það er svo Breiðablik sem spilar uppöldum leikmönnum hvað mest en FH-ingar eru einnig duglegir við líkt og KR og ÍA.