Bild í Þýskalandi heldur því fram að Arsenal sé komið í samtalið um Hugo Ekitike framherja Frankfurt.
Arsenal vill fá inn sóknarmann í sumar og hafa Benjamin Sesko og Viktor Gyokeres mest verið nefndir.
Ekitike er 23 ára gamall franskur framherji sem hefur gert vel með Frankfurt í þýska boltanum.
Ekitike var áður hjá PSG og fór til Þýskalands til að koma sér á flug.
Chelsea, Liverpool og Manchester United hafa öll skoðað Ekitike í sumar og nú virðist Arsenal ætla að blanda sér í slaginn.