Florian Wirtz er sagður vera á leið til Liverpool en hann er í dag á mála hjá Bayer Leverkusen í Þýskalandi.
Fjölmörg stórlið í Evrópu hafa sýnt miðjumanninum áhuga en hann horfir til Liverpool og vill semja við Englandsmeistarana.
Blaðamaðurinn Florian Plettenberg greinir frá því að Wirtz heimti það að fá treyjunúmerið tíu sem hann klæðist hjá Leverkusen.
Það númer er í eigu Alexis Mac Allister á Anfield en hann er gríðarlega mikilvægur leikmaður enska stórliðsins.
Hvort Mac Allister sé tilbúinn að fórna þessu númeri er óljóst en það var áður í eigu Sadio Mane fyrir um tveimur árum sem færði sig síðar til Bayern Munchen.
Goðsagnir hjá Liverpool hafa klæðst þessari treyju en nefna má Michael Owen, Philippe Coutinho, Jamie Redknapp, John Toshack og Terry McDermott.