Bæði Napoli og Juventus eru klár í að borga 25 milljónir punda fyrir Jadon Sancho kantmann Manchester United.
Enskir miðlar segja frá en þar segir einnig að bæði félög muni ekki borga Sancho sömu laun.
Sancho er með 250 þúsund pund hjá Manchester United og hafnaði Chelsea sem bauð honum lægri laun.
United vill losna við Sancho í sumar en launapakkinn er slíkur að það gæti orðið erfitt.
United gæti þurft að borga Sancho einhverja summu af launum til að fá hann til að fara.